Móttaka Hugverkastofunnar er opin
Mynd

Móttaka Hugverkastofunnar, að Engjateigi 3, er opin en við hvetjum viðskiptavini til að bóka tíma fyrirfram í gegnum heimasíðu Hugverkastofunnar, með því að senda tölvupóst til hugverk@hugverk.is eða hafa samband í síma 580 9400.
Opnunartími Hugverkastofunnar er alla virka daga frá kl. 10-15.
Rafrænar þjónustuleiðir:
- Heimasíða: Hægt er að senda inn umsóknir rafrænt, bóka þjónustu og fá svör við flestum hugverkatengdum spurningum á heimasíðu okkar www.hugverk.is.
Þær tegundir umsókna sem ekki er hægt að leggja inn rafrænt má senda á útfylltum
eyðublöðum á netfangið hugverk@hugverk.is. - Tölvupóstur: Fyrirspurnum sem sendar eru á hugverk@hugverk.is er svarað eins fljótt og auðið er.
- Símsvörun: Opið er fyrir þjónustu og leiðbeiningar í síma 580 9400 frá kl. 10-15 alla virka daga.
- Netspjall: Opið er fyrir þjónustu og leiðbeiningar í netspjalli frá kl. 10-15 alla virka daga og einnig er hægt að skilja eftir skilaboð allan sólarhringinn.