Útgáfa » Fréttir

Lauf Forks og Sidekick Health hljóta Nýsköpunarverðlaun Íslands

Lauf Forks og Sidekick Health hljóta Nýsköpunarverðlaun Íslands

20. september 2022

Nýsköpunarverðlaun Íslands voru afhent á Nýsköpunarþingi í dag en að þessu sinni voru veitt verðlaun fyrir árið 2021 og 2022. Fyrirtækið Sidekick Health hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2022 og Lauf Forks Nýsköpunarverðlaun Íslands 2021.

Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf Forks og Tryggvi Þorgeirsson, læknir og forstjóri Sidekick Health veittu verðlaununum viðtöku úr hendi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Nýsköpunarþingið var haldið í Grósku undir yfirskriftinni Hugvitið út – hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?

Nánar um verðlaunahafa
Lauf Forks var stofnað árið 2011 í kringum hugmynd að framúrstefnulegum fjöðrunargaffli fyrir reiðhjól sem var sérhannaður fyrir lítil högg. Fyrir á markaði voru einungis stífir gafflar án fjöðrunar og svo þungir og viðhaldsfrekir fjöðrunargafflar gerðir fyrir stærri högg og grófari fjallahjólreiðar. Þróunarvinna félagsins hefur leitt af sér fjöðrunartækni sem hefur sérstöðu á markaði og er einkaleyfisvarin. Í dag er helsta afurð félagsins hjól í flokki malarhjóla sem byggja á fjöðrunartækninni.

Rökstuðningur dómnefndar:
Lauf Forks er framúrskarandi fyrirtæki sem byrjaði sem hugmynd hjá ungum frumkvöðlum. Það tók félagið nokkur ár að öðlast viðurkenningu á markaði með tækni sína, en árið 2016 fékk það í fyrsta sinn einróma lof "í bransanum" fyrir tækni sína. Það var þá sem Laufforks tók skrefið inn í nýjan flokk malarhjóla, úr flokki fjallahjóla en malarhjól henta mjög vel fyrir fjöðrunartækni félagsins. Laufforks er með víðtækt og sterkt einkaleyfi á tækninni en tæknin hefur gert fyrirtækinu kleyft að selja heil hjól sem hafa sérstöðu gagnvart keppinautum. Fyrirtækið hefur náð góðum vexti með sölu tæknilega framúrskarandi malarhjólum og er markmið næstu ára að tryggja því markaðsleiðandi stöðu á þeim markaði.

Bandaríkin eru stærsti markaður Lauf Forks, með yfir 70% sölu fyrirtækisins. Mikil tækifæri eru fyrir félagið að vaxa bæði á bandaríkjamarkaði og annars staðar í heiminum. Jafnframt eru tækifæri til að auka við vöruframboð með áframhaldandi vöruþróun hjá félaginu.
Það er mat dómnefndar að Lauf Forks sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2021. Það er mikil kraftur í starfsemi félagsins og tækifæri til vaxtar á markaði víða.

Sidekick Health þróar og markaðssetur stafrænar heilbrigðismeðferðir í samstarfi við stærstu lyfja- og sjúkratryggingafélög í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar á meðal eru alþjóðlegu lyfjafyrirtækin Pfizer, Bayer og Eli Lilly auk Elevance Health, sem er annað stærsta sjúkratryggingafélag Bandaríkjanna. Markmið félagsins er að styðja við sjúklinga utan veggja heilbrigðiskerfisins, draga úr álagi á heilbrigðisstarfsfólk og auka virkni hefðbundinna heilbrigðismeðferða. Sidekick vinnur einnig að rannsóknarverkefnum í nánu samstarfi við heilbrigðisstofnanir hérlendis og erlendis.

Rökstuðningur dómnefndar:
Sidekick Health er nýsköpunarfyrirtæki sem einbeitir sér að nýsköpun sem leiðir til mikils samfélagslegs ávinnings í gegnum bætta heilsu fólks. Nálgun þeirra hefur sýnt árangur og vakið athygli stórra aðila sem hafa unnið með fyrirtækinu og þannig tryggt grundvöll þess. Félagið býr að mikill þekkingu og reynslu sem hefur leitt af sér öflugt þróunarstarf innanlands.
Sidekick Health er fyrirtæki sem hefur vaxið hratt undanfarin ár en árið 2019 störfuðu 10 manns hjá félaginu en í dag starfa tæplega 190 manns hjá fyrirtækinu. Framundan er áframhaldandi þróun á lausninni hér á landi í samstarfi við erlenda og innlenda aðila. Framtíð fyrirtækisins er björt með frekari vexti og fjölgun sérhæfðra starfa.

Félagið mun áfram sinna mikilvægu þróunarstarfi hérlendis og vinna að þróun lausnarinnar til að styðja við sjúklinga með langvinna sjúkdóma, sem kosta heilbrigðiskerfi heimsins mestu fjármunina.

Það er mat dómnefndar að Sidekick Health sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2022 og framundan séu spennandi tímar hjá fyrirtækinu, sem munu skila sér bæði í enn öflugra fyrirtæki og bættum lífsgæðum þeirra sem nota afurðir fyrirtækisins.

Nýsköpunarverðlaun Íslands
Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Hugverkastofunni, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu.

Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.
Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.