Útgáfa » Fréttir

Nýsköpunarþing 2022

Nýsköpunarþing 2022

07. september 2022

Nýsköpunarþing 2022 verður haldið þriðjudaginn 20. september í Grósku frá kl. 13:30-15:00.

Yfirskrift þingsins 2022 er Hugvitið út! – Hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?

Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.

Fullt er á þingið og lokað hefur verið fyrir skráningar.

Dagskrá

Ávarp
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Undirstöður og drifkraftar verðmætasköpunar á grunni hugvits
Dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGo

Sjálfbærni og nýsköpun: Verkfæri í sölu- og markaðsstarfi
Klara Sveinsdóttir framkvæmdastjóri gæða- og skráningarmála Kerecis

Nýsköpun felst í mannauðnum
Elín María Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs hjá Controlant

Loforðin á bak við markmiðið
Jenný Ruth Hrafnsdóttir, meðstofnandi Crowberry Capital

Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2021 og 2022
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Fundarstjóri er Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

Nýsköpunarþinginu verður streymt. Í lok þingsins er boðið upp á léttar veitingar. Aðgangur er ókeypis - en gestir þurfa að skrá sig og hefur verið opnað fyrir skráningar.

Nýsköpunarþing er haldið í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar.