Algengar spurningar um hönnun

  • Kostnaður við skráningu hönnunar fer eftir umfangi umsóknarinnar, hvort umsóknin feli í sér eina hönnun eða fleiri (samskráning) og hversu margar myndir umsækjandinn lætur fylgja með umsókninni. 

    Greiða þarf fyrir hönnun innan 7 daga frá því umsókn er lögð inn. 

  • Skráning hönnunar gildir í 25 ár. Oft er hönnun skráð til fimm ára til að byrja með og tímabilið svo endurnýjað um fimm ár í senn þar til 25 ára verndartíma er náð.

  • Hægt er að sækja um hönnun rafrænt á heimasíðu Hugverkastofunnar. Við gerð hönnunarumsóknar er mikilvægt að teikningar og/eða myndir af hönnuninni séu skýrar og að ekkert annað sé á myndunum nema það sem óskað er verndar á. Verndin ræðst af því sem sést á myndunum. 

  • Hönnunarskráning verndar útlit vöru eða hluta af vöru, þ.e. lögun, liti, mynstur o.fl. Til þess að hönnun njóti verndar samkvæmt lögum um hönnun þarf hún að uppfylla þau skilyrði að vera ný og sérstæð.

    • Myndir eiga að vera á JPEG–formi.
    • Hver mynd á aðeins að sýna vöruna frá einu sjónarhorni.
    • Á mynd má aðeins koma fram varan sem verndin á að ná til.
    • Bakgrunnur myndanna ætti að vera eins hlutlaus og kostur er.
    • Ef fleiri myndir en ein eru lagðar inn með umsókn er best að auðkenna myndir með skýrum hætti. Þegar um samskráningu er að ræða er enn fremur best að auðkenna hverja mynd fyrir sig með númeri svo ljóst sé hvaða myndir tilheyri hvaða hönnun.
  • Til þess að hönnun njóti verndar þarf hún að uppfylla það skilyrði að vera ný og sérstæð.

    Hönnun má ekki innihalda:

    • Fána eða önnur merki, tákn eða skjaldarmerki sem hafa sérstakt gildi fyrir almenning.
    • Vörumerki eða heiti á atvinnustarfsemi annars aðila.
    • Verk sem nýtur verndar höfundarréttarlaga.
  • Með umsókn skapast svokallaður forgangsréttur sem þýðir að í 6 mánuði frá umsóknardegi er hægt að leggja inn umsókn erlendis og fá skráðan sama umsóknardag og á Íslandi. Umsóknin fær því forgang framyfir þau merki sem eru eins eða lík og koma fram í millitíðinni. Þar af leiðandi tapast enginn tími við að kanna með fyrstu viðbrögð við íslensku umsókninni.  

  • Í einni og sömu umsókn er hægt að sækja um vernd á fleiri en einni hönnun. Skilyrði er að um sé að ræða vörur til sömu eða svipaðra nota og að þær séu flokkaðar í sama flokk samkvæmt Locarno–samningnum um alþjóðlega flokkun hönnunar.

    Dæmi um samskráningar eru:

    • Húsgögn; borð, stóll, o.þ.u.l.
    • Skartgripir; hringur, hálsmen, armband, o.þ.u.l.