Algengar spurningar um vörumerki

  • Kostnaður við skráningu vörumerkja fer eftir því hversu margir vöru- og þjónustuflokkar eru valdir. Einn flokkur er innifalinn í grunngjaldinu, síðan bætist flokkagjald við fyrir hvern umframflokk. Innifalið í kostnaði í upphafi er rannsókn á skráningarhæfi og meðhöndlun umsóknar og skráningar fram að næstu endurnýjun.

  • Auðveldast er að sækja um vörumerki með rafrænni umsókn. Til að sækja um rafrænt þarf viðkomandi að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

  • Vörumerki eru skráð og endurnýjuð til 10 ára í senn. Endurnýja þarf vörumerki til þess að þau haldi gildi sínu. Endurnýja má vörumerki eins oft og eigandi óskar. Eigandi vörumerkis fær tilkynningu með tölvupósti þegar komið er að endurnýjun. Þess vegna er mikilvægt að eigendur vörumerkja tilkynni Hugverkastofunni um breytingu á netföngum ef svo er, en það má gera með tölvupósti. Hugverkastofan ber ekki ábyrgð á missi réttinda ef tilkynning er annað hvort ekki send eða hún kemst ekki til skila.

  • Vörumerki eru skráð til 10 ára í senn. Ef umsókn um endurnýjun vörumerkjaskráningar er ekki lögð fram innan frests verður merkið afmáð. Umsækjandi getur óskað eftir endurupptöku innan tveggja mánaða frá því að frestur rann út. Beiðni um endurupptöku þarf að fylgja umsókn um endurnýjun og greiða þarf tilskilin gjöld. Afmáð vörumerki eru laus fyrir aðra.

  • Vörumerki sem skráð eru hjá Hugverkastofunni gilda eingöngu á Íslandi, þ.e. að eigandinn hefur aðeins einkarétt á merkinu hér á landi. Ef markaðssetning er fyrirhuguð erlendis er mikilvægt að skrá merkið einnig í öðrum ríkjum ef tryggja á vernd þess.  

    Hægt er að sækja um alþjóðlega skráningu hjá Hugverkastofunni. Alþjóðleg umsókn verður að byggja á landsbundinni umsókn og þarf því að sækja um á Íslandi áður en alþjóðleg umsókn er lögð inn. Umsóknin þarf að vera eins í báðum tilvikum. Í umsókn um alþjóðlega skráningu þarf að tilgreina í hvaða ríkjum er óskað skráningar. Hægt er að vernda merkið í yfir 120 löndum. Hvert land fyrir sig tekur ákvörðun um skráningarhæfi umsóknar.

  • Með umsókn skapast svokallaður forgangsréttur sem þýðir að í 6 mánuði frá umsóknardegi er hægt að leggja inn umsókn erlendis og fá skráðan sama umsóknardag og á Íslandi. Umsóknin fær því forgang framyfir þau merki sem eru eins eða lík og koma fram í millitíðinni. Þar af leiðandi tapast enginn tími við að kanna með fyrstu viðbrögð við íslensku umsókninni.  

  • Vörumerkjavernd skapast með tvennum hætti, notkun eða skráningu hjá Hugverkastofunni. Áður en farið er út í kostnaðarsamt markaðsstarf er æskilegt að fá úr því skorið hvort merki sé þess eðlis að hægt sé að fá einkarétt á því. Eins er mikilvægt að merki sé skráð ef til þess kemur að verja þurfi það fyrir ágangi annarra. Hægt er að gera leit að umsóknum og skráðum merkjum í vörumerkjaleitarvél Hugverkastofunnar.

  • Vörumerki eru oft verðmætustu eignir fyrirtækja og mikilvægt að halda vel utan um þau og vernda. Það fer mikill tími og vinna í að byggja upp fyrirtæki. Í nafni, orðspori og viðskiptavild felast mikil verðmæti sem eru vernduð með vörumerki fyrirtækisins, vöru þess eða þjónustu. Þú vilt ekki að þriðji aðili nýti sér þessi verðmæti.

    Það er því vit í því að vernda nafn, vörumerki og myndmerki fyrirtækisins og vera því í sterkari stöðu gagnvart öðrum aðilum sem vilja nýta sér árangur annarra. Það minnkar einnig áhættuna á ágreiningi sem getur verið kostnaðarsamur.

  • Gott vörumerki felur í sér orð eða tákn sem er einstakt og gefur merkinu sérkenni. Hlutverk vörumerkja er að greina vörur og þjónustu merkiseiganda frá vörum og þjónustu annarra. Því er mikilvægt að vörumerki feli í sér einkenni sem neytandinn festir sér auðveldlega í minni.  

  • Hugverkastofan sér um skráningu vörumerkja og fyrirtækjaskrá RSK skráir fyrirtæki og félagasamtök og heldur utan um tilgang félaga, eigendur þeirra o.fl.

    Hjá Hugverkastofunni er m.a. hægt að sækja um skráningu á orðmerki, myndmerki, þrívíddarmerki, staðsetningarmerki, mynsturmerki, litamerki, hljóðmerki, hreyfimerki, margmiðlunarmerki og heilmyndarmerki. 

  • Félagamerki eru sameiginlegt auðkenni fyrir félög eða samtök til að nota í atvinnustarfsemi. Félagsmönnum er leyft að nota merkið til að merkja vörur og/eða þjónustu.

    Með skráningu félagamerkis geta félög eða samtök öðlast einkarétt á að nota sameiginlegt auðkenni fyrir félagsmenn sína til að nota í atvinnustarfsemi. 

    Félagamerki eru í eðli sínu vörumerki og þurfa að uppfylla sömu skráningarskilyrði, ásamt reglum um notkun merkis þ.e.

    1. Hverjir hafa heimild til þess að nota merkið.
    2. Hvaða skilyrði gilda um notkun merkisins og hvaða afleiðingar og viðurlög óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér.
    3. Hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið.
    4. Hvaða reglur gilda um aðild að því félagi sem á merkið ef um félagamerki er að ræða.

    Dæmi um félagamerki eru nöfn á íþróttafélögum og vörumerkið Kaka ársins sem er í eigu félags bakarameistara.

  • Ábyrgðar- og gæðamerki eru merki sem aðgreina vöru eða þjónustu sem vottuð er af eiganda merkisins að því er varðar efni, framleiðsluaðferð og gæði eða aðra eiginleika frá annarri vöru eða þjónustu sem hefur fengið slíka vottun. Einungis aðilar sem setja staðla um eða annast eftirlit með vörum eða þjónustu geta sótt um ábyrgðar- og gæðamerki. Með skráningu getur eigandi bannað öðrum að nota sama eða líkt merki.

    Ábyrgðar- og gæðamerki eru í eðli sínu vörumerki og þurfa að uppfylla sömu skráningarskilyrði, ásamt reglum um notkun merkis þ.e.

    1. Hverjir hafa heimild til þess að nota merkið.
    2. Hvaða skilyrði gilda um notkun merkisins og hvaða afleiðingar og viðurlög óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér.
    3. Hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið.
  • Mikilvægt er að vanda til verka þegar listi yfir vöru og/eða þjónustu er settur saman því ekki er hægt að bæta við flokkum eða tilgreiningum eftir að umsókn hefur verið send inn. Gagnlegt getur verið að skoða vörulista sambærilegra fyrirtækja. Þetta má gera í vörumerkjaleitarvél Hugverkastofunnar. 

    Alltaf þarf að tilgreina þá vöru og/eða þjónustu sem merkið á að standa fyrir. Flokkarnir eru 45. Velja má einn eða fleiri flokka. Yfirskriftir flokkanna (1–45) gefa vísbendingu um það hvaða vörur/þjónusta fellur undir hvern flokk. 

  • Hugverkastofan hefur ekki heimild í lögum til að sinna eftirliti og gera aðfinnslur við notkun merkja á markaði. Stofnunin sinnir eingöngu því hlutverki að veita vörumerkjaréttindi og er það í höndum rétthafa að framfylgja þeim rétti sínum.  

    Ef eigandi skráðs vörumerkis telur að verið sé að brjóta á vörumerkjarétti hans ráðleggjum við honum að byrja á að upplýsa viðkomandi aðila um skráninguna. Þetta má t.d. gera bréflega. Ef slíkt gengur ekki eftir má leita til lögfræðings eða Neytendastofu sem hefur eftirlits- og aðgerðaheimildir sem Hugverkastofan hefur ekki.   

  • Nei, það er ekki leyfilegt að gera breytingar á umsóknum um vörumerki eftir að umsókn hefur verið lögð inn. Því er mikilvægt að vanda vöru- og þjónustulistann og velja rétta tegund merkisins.

    Breyting á skráðu merki 
    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir að gera minni háttar breytingar á skráðu vörumerki. Breytingarnar mega ekki vera það miklar að þær breyti heildarmynd merkisins.  Gjald skv. gjaldskrá þarf að fylgja beiðni um breytingu á skráðu merki. 

    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir því að Hugverkastofan uppfæri mynd sem sýnir vörumerki í betri gæðum og/eða upplausn. 

    Skipti vörumerkið um eiganda er nauðsynlegt að leggja fram gögn því til staðfestingar til Hugverkastofunnar, s.s. framsal, gögn um samruna eða önnur gögn. Einnig er mikilvægt að tilkynna Hugverkastofunni ef: 

    • nafn fyrirtækisins breytist 
    • heimilisfang eiganda breytist 
    • þú framselur vörumerkið til annars aðila 
    • þú veðsetur vörumerkið 
    • þú breytir reglum um notkun félagamerkis eða ábyrgðar- og gæðamerkis 
    • þú skiptir um umboðsmann 

    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir að fella úr gildi hluta vöru- og/eða þjónustulistans, eða fella skráninguna niður í heild sinni. 

    Hverju er ekki hægt að breyta? 

    Það er aldrei hægt að bæta við vöru- og þjónustulistann 

  • Vörumerki þarf að endurnýja á 10 ára fresti. Sótt er um endurnýjun út af spjaldi vörumerkis sem má nálgast í gegnum leitarvélina okkar. Þú leitar að merkinu sem á að endurnýja, smellir á það og leggur inn umsókn um endurnýjun.

    • Umsækjendur búsettir á Íslandi þurfa ekki að hafa umboðsmann. 
    • Greiðsluseðlar stofnast á tilgreindan umboðsmann og berast í  heimabanka hans. 
    • Umsækjandi og umboðsmaður getur ekki verið sami aðili. 
    • Umboðsmaður þarf að hafa heimild eiganda merkis til þess að taka við tilkynningum um merkið. 
    • Almennt er ekki krafist sönnunar á umboði en Hugverkastofan getur þó ávallt krafist slíkrar sönnunar ef þörf er á. 
    • Umboðsmaður fær tilkynningu um að komið sé að endurnýjun merkis eða eins og netfang hans segir til um. 
  • Unnt er að óska eftir eftirfarandi breytingum á merki:

    • Óska má eftir að tilgreiningar úr vöru- og þjónustulista eða flokkar í heild sinni verði felldir niður og skráning þannig takmörkuð.
    • Þá er hægt að óska eftir smávægilegri breytingu á mynd eða texta merkis.
    • Ef sótt var um myndmerki fyrir 1. september 2020 má óska eftir að tegund þess verði breytt.

    Allar breytingar sem eigandi merkis óskar eftir eru yfirfarnar af Hugverkastofunni og færðar í vörumerkjaskrá ef engar athugasemdir eru gerðar af hálfu stofnunarinnar. Ef Hugverkastofan hefur athugasemdir eða telur gögn sem fylgja beiðni ófullnægjandi er veittur frestur til úrbóta.

    Beiðni um breytingu er hægt að leggja inn með stafrænum hætti af spjaldi/síðu viðkomandi vörumerkis.

  • Hugverkastofan getur, að beiðni umsækjanda og gegn greiðslu tilskilins gjalds, hlutað umsókn sundur í tvær eða fleiri umsóknir. Sama gildir um skráningar.  Nýja umsóknin/skráningin skal hafa sama umsóknar- og forgangsréttardag og grunnskráningin en sjálfstætt skráningarnúmer verður gefið. Nýja umsóknin/skráningin getur ekki innihaldið sama/sömu vöru- og/eða þjónustuflokk/flokka og sú fyrri.

    Ákvörðun um hlutun umsóknar/skráningar er birt í Hugverkatíðindum.

    Gögn vegna hlutunar umsókna og skráninga

    Beiðni um hlutun umsóknar/skráningar skal innihalda:

    • númer umsóknarinnar/skráningarinnar sem óskað er að hluta,
    • lista yfir þær vörur og/eða þjónustu sem hver umsókn/skráning á að innihalda eftir hlutunina.

    Umsókn eða skráning, sem verður til við hlutun, má ekki vera víðtækari en upprunalega umsóknin. Þá má nýja umsóknin/skráningin ekki taka til sömu vöru eða þjónustu og hin upprunalega.

    Þegar beiðni um hlutun umsóknar hefur verið afgreidd fær nýja umsóknin nýtt sjálfstætt ­númer en heldur sömu umsóknar- og forgangsréttardagsetningu og upprunalega umsóknin sé slíku til að dreifa.

    Þegar beiðni um hlutun vörumerkjaskráningar hefur verið afgreidd fær nýja skráningin nýtt sjálfstætt ­númer en heldur sömu skráningar-, umsóknar- og forgangsréttardagsetningu og upprunalega skráningin sé slíku til að dreifa.

    Umboð, framsalsgögn og önnur skjöl tengd upprunalegu umsókninni/skráningunni gilda einnig fyrir nýju umsóknina/skráninguna sem verður til við hlutun.

    Breytingin er birt í Hugverkatíðindum.