Fréttir
Allsherjarþingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar í Genf nýlokið

Allsherjarþingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization General Assembly) í Genf í Sviss er nýlokið og tóku fulltrúar Hugverkastofunnar að venju þátt í starfi þingsins. Dagskráin var er þétt, en á þinginu var fjallað um mikilvæg málefni hugverkaréttar, m.a. breytingar á reglum Madrid-samningsins um vörumerki og samstarfssamningsins um einkaleyfi (PCT) sem Ísland er aðili að og skýrslu um aðstoð WIPO við uppbyggingu innviða í Úkraínu á sviði hugverkaréttinda.
(Mynd frá WIPO)
