Fréttir

Auglýsingu um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja ekki breytt um áramótin

Brynhildur Pálmarsdóttir10. desember 2024Alþjóðlegt samstarfVörumerki
Hnottur

Alþjóðahugverkastofnunin, WIPO, uppfærir að jafnaði flokkaskrá fyrir vörur og þjónustu vegna skráningar vörumerkja um hver áramót. Að þessu sinni eru ekki gerðar breytingar á yfirskrift flokkanna heldur verða eingöngu breytingar á tilgreiningum eða skýringum með flokkunum. Því mun auglýsing um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja nr. 1365/2023 um 12. útgáfu alþjóðlegu skrárinnar ekki taka breytingum um komandi áramót.

Flokkaskrána ásamt skýringum má ávallt finna á vef Nice-samningsins um alþjóðlega flokkun vöru og þjónustu vegna skráningar vörumerkja.

Íslenska útgáfu yfirskriftar flokkanna er að finna í áðurgreindri reglugerð og á vef Hugverkastofunnar.