Fréttir
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, endurkjörin varaformaður framkvæmdaráðs Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO)

Á fundi framkvæmdaráðs Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) í Munchen í dag var Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, endurkjörin varaformaður, þriðja kjörtímabilið í röð. EPO er ein stærsta alþjóðastofnun Evrópu með 39 aðildarríki og um 6.300 starfsmenn. Í ár eru liðin 20 ár frá því að Ísland gerðist aðili að EPO og frá þeim tíma hefur verið hægt að óska eftir að evrópsk einkaleyfi taki gildi hér á landi.

Í framkvæmdaráði EPO sitja forstjórar hugverkastofa allra aðildarríkja stofnunarinnar. Það mótar stefnu stofnunarinnar og tekur ákvarðanir sem varða rekstur og stjórnun í nánu samráði við forstjóra. Varaformaður ráðsins situr í 13 manns stjórn þess og stýrir fundum í fjarveru formanns. Borghildur hefur gegnt stöðu varaformanns ráðsins frá árinu 2019.
„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að gegna stöðu varaformanns framkvæmdaráðsins í þrjú ár í viðbót,“ segir Borghildur. „Alþjóðlegt samstarf á sviði hugverkaréttar skiptir Ísland miklu máli, ekki síst samstarfið við EPO. Fjölmörg íslensk fyrirtæki eiga einkaleyfi sem skráð eru hjá EPO og um 9.500 evrópsk einkaleyfi eru í gildi hér á landi. Það er þess vegna mjög mikilvægt að við tökum virkan þátt í að móta áherslur stofnunarinnar,“ segir hún. „Ég hlakka mikið til starfsins næstu þriggja ára enda miklar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, m.a. varðandi gervigreind og við að tryggja samkeppnishæfi Evrópu og sjálfbærni til framtíðar.“
Um EPO
Evrópska einkaleyfastofan (EPO) var stofnuð árið 1973. Alls undirrituðu 16 ríki evrópska einkaleyfasamninginn það ár en meðlimir eru nú 39 talsins, þ.m.t. öll 27 ríki Evrópusambandsins, auk ríkja eins og Noregs, Sviss, Íslands og Tyrklands. Hlutverk EPO er að taka við umsóknum um evrópsk einkaleyfi, rannsaka einkaleyfisumsóknir og gera uppfinningamönnum og fyrirtækjum frá öllum heimshornum kleift að vernda uppfinningar sínar í allt að 45 löndum með einni einkaleyfisumsókn í gegnum eitt miðlægt kerfi. Höfuðstöðvar EPO eru í München en auk þess rekur stofnunin skrifstofur í Haag, Berlín, Vín og Brussel. António Campinos hefur gegnt embætti forstjóra EPO frá 1. júlí 2018. Í fyrra bárust stofnuninni hátt í 200.000 umsóknir um evrópsk einkaleyfi.
