Fréttir

Carbfix tilnefnt til WIPO Global verðlaunanna 2025

Eiríkur Sigurðsson23. maí 2025Alþjóðlegt samstarf
WIPO Global Innovation Awards Web

Carbfix hefur verið tilnefnt til að hljóta WIPO Global verðlaunin 2025 í umhverfisflokki. Verðlaunin eru veitt ár hvert af Alþjóðahugverkastofnuninni (World Intellectual Property Organization, WIPO) framúrskarandi litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sprotafyrirtækjum og háskólasprotum fyrir öfluga nýsköpun, skýra hugverkastefnu og mikilvægt framlag til efnahagslegrar, samfélagslegrar og umhverfislegrar sjálfbærni.

Carbfix er eitt þrjátíu fyrirtækja sem eru tilnefnd til verðlaunanna. Þau voru valin úr hópi 780 fyrirtækja frá 95 löndum sem WIPO bárust tillögur um. Forstjóri WIPO, Darren Tang, mun afhenda verðlaunin á allsherjarþingi stofnunarinnar í höfuðstöðvum hennar í Genf þann 11. júlí næstkomandi.

Við val á tilnefningum og verðlaunahöfum er sérstaklega litið til

  • Að rannsóknir og hugmyndir séu nýttar til að skapa verðmæti á markaði
  • Að vöxtur byggi á skýrri og öflugri hugverkastefnu
  • Að lausnirnar styðji við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG)

Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem vinna til verðlaunanna munu hljóta sérsniðna fræðslu frá sérfræðingum WIPO um hugverkavernd og stuðningsáætlun sem miðar að því að aðstoða fyrirtækin við að ná markmiðum sínum varðandi vöxt og fjármögnun, auk þess sem verðlaunafyrirtækin verða kynnt á fjölbreyttan hátt af WIPO um allan heim.
Frekari upplýsingar um verðlaunin og tilnefnd fyrirtæki er að finna á vef WIPO.

Um Alþjóðahugverkastofnunina

Alþjóðahugverkastofnunin (World Intellectual Property Organization, WIPO) er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Alls eru 193 lönd aðilar að stofnuninni, þar á meðal Ísland sem hefur verið aðili frá árinu 1986. Hjá stofnuninni starfa um 1.700 manns, flestir í höfuðstöðvum hennar í Genf í Sviss. WIPO ber ábyrgð á alþjóðasamningum um hugverkaréttindi sem skapa samræmda umgjörð um alþjóðleg skráningarferli vörumerkja, einkaleyfa og hönnunar og hlutverk skráningaryfirvalda í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá og á Hugverkastofan fulltrúa á þeim fundum og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.