Fréttir
Endurnýjað samstarf vegna flýtimeðferðar einkaleyfisumsókna (PPH)

Um mánaðarmótin júní/júlí næstkomandi taka breytingar gildi í tengslum við flýtimeðferð einkaleyfisumsókna (e. Patent Prosecution Highway – PPH).
Annars vegar er um að ræða endurnýjað samstarf Hugverkastofunnar og Kínversku einkaleyfastofunnar (CNIPA) frá 1. júlí næstkomandi til næstu fimm ára, þ.e. til 30. júní 2029. Engar efnislegar breytingar urðu á samningi við CNIPA.
Hins vegar er um að ræða það sem nefnt hefur verið Global Patent Prosecution Highway (GPPH). Við þau ríki mun einkaleyfastofa Brasilíu, Brazilian National Institute of Industrial Property (INPI-BR) bætast þann 6. júlí 2024.
Unnið er að uppfærslu á sniðmátum Hugverkastofunnar vegna þessa.
Allar upplýsingar um samstarfið má finna á vefsíðu stofnunarinnar á íslensku og ensku.
