Fréttir

Evrópska einkaleyfastofan kallar eftir tillögum fyrir samráðsvettvang um einkaleyfi og tækni

Eiríkur Sigurðsson21. febrúar 2023Alþjóðlegt samstarf
EPO Istock 1161040822

Í haust verður stofnaður samráðsvettvangur um einkaleyfi og tækni (Observatory on Patents and Technology) á vegum Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO). Markmið samráðsvettvangsins er að stuðla að umræðum milli ólíkra hagsmunaaðila, taka saman upplýsingar um þróun nýsköpunar og tækni og áhrif þeirra á einkaleyfakerfið. Vonir standa til að þær upplýsingar muni nýtast EPO og samstarfsaðilum til að sjá betur fyrir breytingar og bregðast við áskorunum í tíma til að stuðla að efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum framförum.

Tillögum að starfi samráðsvettvangsins var safnað meðal fjölmargra aðila sem tengjast einkaleyfum og nýsköpun í febrúar 2022. Á grunni þeirra tillagna voru ítarlegar tillögur lagðar fyrir framkvæmdaráð EPO í júní 2022 sem hlutu jákvæðar viðtökur (skjal CA/47/22).

Nú er unnið að undirbúningi fyrstu tveggja ára starfsáætlunar (2023-2025) samráðsvettvangsins. Því kallar EPO nú aftur eftir tillögum um viðfangsefni sem samráðsvettvangurinn ætti að fjalla um og um starfsemi og verkfæri sem hann ætti að þróa. Einnig er óskað eftir athugasemdum um tillögur sem EPO hefur þegar sett fram um starf samráðsvettvangsins.

Hægt er að senda inn tillögur og athugasemdir til föstudagsins 10. mars . Öllum hagsmunaaðilum og sérfræðingum á sviði nýsköpunar og einkaleyfa er boðið að taka þátt. Sérstaklega er hvatt til breiðrar þátttöku og að einstaklingar sem ekki teljast vera sérfræðingar á sviði hugverkaréttinda sendi inn tillögur og athugasemdir. Hægt er að senda inn tillögur og athugasemdir á vefsíðu EPO.