Fréttir
Fimm vísindafræðsluverkefni hljóta styrk frá Evrópsku einkaleyfastofunni

European Inventor Network, tengslanet uppfinningamanna á vegum Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO), hefur úthlutað styrkjum til fimm íslenskra verkefna fyrir árið 2027. Verkefnin snúa að stjörnufræði, stærðfræði, flugi, hlaðvarpsgerð og maurum.
Markmið með styrkjum European Inventor Network er að vekja áhuga ungs fólks á aldrinum 6–18 ára á vísindum og nýsköpun, til dæmis með fræðslufyrirlestrum, vinnustofum og skapandi smiðjum. Verkefnin tengjast einnig heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Hvert verkefni hlýtur 2.000 evrur í styrk, eða um 270.000 kr.
Alls hljóta 120 verkefni í 39 aðildarríkjum EPO styrk að þessu sinni. Að meðtöldum verkefnum fyrri ára er gert ráð fyrir að starf netsins hafi náð til yfir 22.000 nemenda í meira en 200 skólum í lok árs 2027.
Íslensku verkefnin fimm:
- Huld Hafliðadóttir – STEM á landsbyggðinni tekur flugið
- Matthias Harksen – Tveggja daga stjörnufræðibúðir
- Marco Mancini – Maurar að verki
- Nanna Kristjánsdóttir og Álfheiður Edda Sigurðardóttir – Stærðfræðibúðir fyrir stelpur og kynsegin nemendur
- Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch – Raddir framtíðarinnar. Ungt fólk býr til hlaðvörp um tækni og vísindi.
Hugverkastofan óskar styrkþegum til hamingju.
Upplýsingar um öll verkefni ársins 2027 eru á vef EPO.
