Fréttir

Forstjórar og samskiptastjórar hugverkastofa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna funda á Íslandi

Eiríkur Sigurðsson03. september 2025Alþjóðlegt samstarf
Nordic Baltic Web (2)

Forstjórar og samskiptastjórar hugverkastofa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna komu saman á Íslandi dagana 26.–29. ágúst síðastliðinn. Um var að ræða árlega samráðsfundi sem haldnir eru til skiptis í löndunum átta þar sem farið er yfir þróun á fjölda umsókna um skráð hugverkaréttindi og það sem hæst ber í starfi stofnanna og alþjóðlegu samstarfi á hverjum tíma.

Forstjórarnir ræddu meðal annars þróun umsóknafjölda, stefnu og áherslur stofnananna og innleiðingu nýrrar tækni til að bæta afgreiðslu og þjónustu. Gervigreind var þar í brennidepli ásamt því hvernig hugverkastofur geta brugðist við breyttum aðstæðum og eflt samstarf sitt á alþjóðavettvangi. Þá var fjallað um innleiðingu á nýjum reglum Evrópusambandsins á sviði hönnunar og nýjan alþjóðlegan samning um vernd hönnunar.

Guðmundur Reynaldsson einkaleyfalögfræðingur hjá Carbfix; Edda Sig Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.
Guðmundur Reynaldsson einkaleyfalögfræðingur hjá Carbfix; Edda Sig Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.

Samhliða fundi forstjóranna funduðu samskiptastjórar stofnananna í Reykjavík. Þar var m.a. fjallað um miðlun hugverkaréttinda, árangursríkar herferðir, vel heppnaða viðburði og hvernig auka megi vitund frumkvöðla og smærri fyrirtækja um mikilvægi þess að skrá og vernda hugverk. Þá var gervigreind og önnur ný tækni til umræðu sem verkfæri í upplýsingagjöf og samskiptum.

Vikunni lauk með heimsókn til Carbfix sem hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024, var tilnefnt til Norrænu nýsköpunarverðlaunanna 2025 og hlaut nýverið WIPO Global verðlaunin 2025. Gestirnir fengu innsýn í einstaka nýsköpun á sviði kolefnisbindingar og hvernig hugverkaréttindi leika þar lykilhlutverk.

Samskiptastjórar Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna
Samskiptastjórar Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna