Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Forstjóri frönsku hugverkastofunnar heimsækir Ísland

Pascal Og Borghildur (1)

09. júní 2026Alþjóðlegt samstarf

Pascal Faure, forstjóri frönsku hugverkastofunnar (Institut National de la Propriété Industrielle, INPI) heimsótti Hugverkastofuna í dag ásamt Jérémie Fenichel, framkvæmdastjóra hugverkaréttinda og alþjóðamála.

Tilgangur heimsóknarinnar er að efla tengsl stofnananna tveggja og deila  upplýsingum um verklag við skráningu hugverkaréttinda. Stafræn þróun var til sérstakrar umfjöllunar en stofnanirnar hafa verið í fararbroddi stafrænnar þjónustu undanfarin ár og bjóða nú nær alla sína þjónustu á vefnum. Þá var fjallað sérstaklega um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja á grundvelli hugverkaréttinda og rætt hvaða leiðir eru færar til að auka möguleika fyrirtækja á að sækja sér slíka fjármögnun og möguleika banka á að veita lán á grunni veða í hugverkaréttindum.

F.v.: Jérémie Fenichel, framkvæmdastjóri hugverkaréttinda og alþjóðamála INPI; Sandra Theódóra Árnadóttir, yfirlögfræðingur; Pascal Faure, forstjóri INPI; Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri; Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri; Pétur Vilhjálmsson, og Elfa Íshólm Ólafsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs.
F.v.: Jérémie Fenichel, framkvæmdastjóri hugverkaréttinda og alþjóðamála INPI; Sandra Theódóra Árnadóttir, yfirlögfræðingur; Pascal Faure, forstjóri INPI; Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri; Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri; Pétur Vilhjálmsson, stafrænn leiðtogi og Elfa Íshólm Ólafsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs.

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, greindi m.a. frá skráningum í eigu franskra aðila hér á landi:

Af um 68.000 vörumerkjum sem skráð eru hér á landi eiga franskir aðilar rúmlega 3.800 merki eða tæp 6% sem setur Frakkland í 6. sæti þeirra landa sem eiga hér flest skráð vörumerki. Flest frönsk vörumerki sem skráð eru hér á landi eru í eigu L‘oreal, Sanofi og Renault.

Af rétt um 9.100 einkaleyfum sem eru í gildi hér á landi eiga franskir aðilar 386 einkaleyfi, eða rúm 4% og er Frakkland í 7. sæti yfir þau lönd sem eiga hér flest einkaleyfi. Flest frönsk einkaleyfi hér á landi eru í eigu Les Laboratories Servier, Centre National de la Recherche Scientifuique og Bioprojet.

Af um 1.600 hönnunarskráningum hér á landi eiga Frakkar 68, eða rúm 4% sem setur þá í 8. sæti. Flestar franskar hönnunarskráningar eru í eigu Peugeot Citroen Automobiles, Rautureau Apple Shoes og Sunacorp.