Fréttir

Fulltrúar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum funda um einkaleyfi

Eiríkur Sigurðsson04. júní 2025Alþjóðlegt samstarf
Nordic Baltics Web

Fulltrúar frá hugverkastofum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna komu saman á árlegum samstarfsfundi um einkaleyfi í húsakynnum Hugverkastofunnar í dag.

Á fundinum var farið yfir helstu verkefni sem hver og ein stofnun stendur frammi fyrir á sviði einkaleyfa, m.a. hvað varðar breytingar á lagaumgjörð og verklagi, þróun í umsóknafjölda og afgreiðslu umsókna, þjónustu við viðskiptavini og með hvaða hætti stofnanirnar hvetja frumkvöðla og fyrirtæki í nýsköpun til að huga að mikilvægi þess að verja uppfinningar með einkaleyfum.

Þá var á fundinum rætt um tæknilausnir sem stofnanirnar nota til að afgreiða umsóknir og reynslu af þeim, m.a. lausnir sem þróaðar hafa verið af Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) fyrir hugverkastofur aðildarríkjanna og hvernig gervigreind getur nýst við mat á einkaleyfisumsóknum.

Fundurinn er liður í öflugri samvinnu ríkjanna á sviði hugverkaverndar og er mikilvægur vettvangur til að miðla þekkingu og reynslu milli stofnananna. Á hverju ári er eitt Norðurlandanna eða Eystrasaltsríkjanna gestgjafi slíkra funda og í ár býður Ísland heim. Síðar á árinu mun árlegur samstarfsfundur forstjóra stofnananna fara fram hér á landi og einnig verður fundað um vörumerki, hönnun, samskipti og markaðsmál.