Fréttir

Fundað um vörumerki og hönnun með Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum

Eiríkur Sigurðsson17. október 2025Alþjóðlegt samstarf
Nordic Baltic Vörumerki

Fulltrúar hugverkastofa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna funduðu í vikunni um skráð vörumerki og hönnun, í húsakynnum Hugverkastofunnar. Þetta var síðasti slíki samráðsfundurinn á Íslandi í ár en fyrr á árinu funduðu forstjórar allra stofnananna hér á landi auk þess sem fundað var um einkaleyfa- og samskiptamál.

Á fundinum var farið yfir helstu verkefni stofnananna á sviði vörumerkja og hönnunar, þ.á.m. notkun gervigreindar, innleiðingu á nýrri hönnunartilskipun Evrópusambandsins og þekkingarmiðlun um hugverkavernd. Meðal þess sem fram kom á fundinum var að almennt virðist umsóknum um skráningu vörumerkja sem berast í gegnum alþjóðleg umsóknarkerfi hafa fækkað en landsbundnum umsóknum heldur fjölgað.

Fundinn sóttu fyrir Íslands hönd: Dagný Fjóla Jóhannsdóttir, sviðsstjóri hugverka- og stjórnsýslusviðs; Brynhildur Pálmarsdóttir, yfirlögfræðingur og Sandra Theódóra Árnadóttir, lögfræðingur.

Árlegir samráðsfundir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna eru liður í öflugu samstarfi ríkjanna á sviði hugverkaverndar og mikilvægur vettvangur til að miðla þekkingu og reynslu milli stofnananna. Á hverju ári er eitt landanna gestgjafi slíkra funda og í ár bauð Ísland heim. Næstu fundir verða haldnir í Danmörku að ári.