Fréttir

Hefur þú áhuga á að öðlast EPAC-vottun fyrir umsýslu evrópskra einkaleyfa?

Eiríkur Sigurðsson16. desember 2025Alþjóðlegt samstarfEinkaleyfi
CSP Web

Frá og með árinu 2026 eiga einstaklingar sem hyggja á að öðlast EPAC-sérfræðivottun (European Patent Administration Certification) fyrir umsýslu evrópskra einkaleyfa kost á að sækja námsstyrk og leiðsögn í gegnum nýtt stuðningsúrræði (Candidate Support Programme, CSP) Evrópsku einkaleyfastofunnar (European Patent Office, EPO).

EPAC sérfræðivottunin er formleg og viðurkennd evrópsk vottun á þekkingu og færni við umsýslu með evrópsk og alþjóðleg einkaleyfi og vottar m.a. þekkingu á ferlum og reglum við meðferð og veitingu einkaleyfa hjá Evrópsku einkaleyfastofunni, þar með talið fyrir eitt evrópskt einkaleyfi (Unitary Patent), málaferli og viðhald einkaleyfa eftir veitingu. Vottunin gefur einstaklingum tækifæri á starfsþróun og getur opnað ný tækifæri, hér á landi og erlendis, innan nýsköpunar- og einkaleyfageirans.

Hugverkastofan getur frá og með árinu 2026, valið einn einstakling á ári til að hljóta fjárhagslegan stuðning, leiðsögn og þjálfun til undirbúnings fyrir EPAC-prófið sem haldið verður 9. október 2026. Gert er ráð fyrir að námið taki sex mánuði og styrkurinn nemur alls 2.300 evrum, eða um 340.000 kr. Sambærilegur stuðningur hefur verið og er áfram í boði fyrir einstaklinga sem hyggjast sækja sér réttindi sem evrópskir einkaleyfasérfræðingar.

Hægt verður að sækja um stuðning vegna EPAC prófsins 2026 frá og með 30. janúar 2026 til 17. febrúar 2026. Hugverkastofan mun velja þátttakanda í byrjun mars og undirbúningsnámskeið og handleiðsla hefjast um miðjan mars.

Skilyrði fyrir inntöku og hlekkur á umsóknareyðublað verða birt á vef Hugverkastofunnar um miðjan janúar 2026. Ekki verður gerð krafa um menntun eða starfsreynslu á sviði einkaleyfaumsýslu.