Fréttir

Hefur þú áhuga á að öðlast réttindi sem evrópskur einkaleyfasérfræðingur?

Eiríkur Sigurðsson23. júlí 2025Alþjóðlegt samstarfEinkaleyfi
CSP Web

Evrópska einkaleyfastofan (EPO) hefur hleypt af stokkunum nýrri stuðningsáætlun (Candidate Support Programme,CSP), fyrir umsækjendur sem hyggjast þreyta EQE-hæfnisprófið (European Qualifying Examination). Prófið veitir réttindi til að starfa sem evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attourney) við málsmeðferð hjá EPO.

Nú geta sérfræðingar á sviði einkaleyfa sem starfa á Íslandi og stefna á að taka EQE-prófið árið 2026, sótt um þátttöku í stuðningsáætluninni fyrir tímabilið 2025/2026.

Hvað er EQE?

EQE er próf sem veitir réttindi til að starfa sem löggiltur evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attorney) og vera fulltrúi umsækjenda og réttargæsluaðili í málum gagnvart EPO. EQE-prófið samanstendur af fimm skriflegum prófum sem reyna á röksemdafærslu, dómgreind og lagaskilning við gerð og meðferð einkaleyfaumsókna fyrir EPO, allt frá umsókn til veitingar og málsmeðferðar eftir veitingu einkaleyfis. Aðeins sérfræðingar með menntun á sviði tækni eða vísinda, sem munu í mars 2026 hafa að lágmarki eins árs reynslu af starfi tengdu einkaleyfum undir handleiðslu löggilts evrópsks einkaleyfasérfræðings, geta þreytt prófið. Prófinu var komið á fót árið 1979 og í dag eru um 14.000 einstaklingar á lista EPO yfir löggilda aðila.

Hvað felst í CSP stuðningsáætluninni?

CSP stuðningsáætlunin er þriggja ára verkefni sem Evrópska einkaleyfastofan stendur að í samstarfi við aðildarríki sín, þar á meðal Ísland. Verkefnið felst í því að veita kandídötum sem stefna á að taka EQE-hæfnisprófið og öðlast þannig réttindi sem löggiltir einkaleyfasérfræðingar gagnvart EPO, faglega ráðgjöf, fræðslu og fjárhagslegan stuðning.

Markmiðið er að styðja við undirbúning fyrir EQE-prófið og auka fjölbreytileika og hæfni innan evrópska einkaleyfageirans. Hugverkastofan getur tilnefnt allt að fjóra umsækjendur í áætlunina, þar af eru tvö sæti sérstaklega ætluð konum til að styðja við jafnrétti innan greinarinnar.

Anna Valborg Guðmundsdóttir, evrópskur einkaleyfasérfræðingur hjá Össuri, lauk EQE-prófinu fyrir átta árum og naut þá stuðnings CSP áætlunarinnar. Hún segir um reynslu sína:

„Það sem ég hélt að yrði einfaldlega námsstuðningur, reyndist vera svo miklu meira. CSP-stuðningurinn varð vendipunktur í lífi mínu. Ég hlaut ekki aðeins fyrsta flokks þjálfun og stuðning, heldur komst ég í tengsl við drífandi, örlátt og styðjandi fólk, sem margt er nú nánir vinir mínir. Þetta breytti hugarfari mínu varðandi námið, frá því að einblína eingöngu á að standast próf yfir í að tileinka mér menningu þar sem umhyggja, samvinna og það að efla aðra er í forgrunni. Eftir að ég lauk EQE-prófinu hef ég haldið tengslum við CSP stuðningsáætlunina, lagt mitt af mörkum sem leiðbeinandi, haldið áfram að læra og tengst nýjum kynslóðum þátttakenda víðs vegar að frá Evrópu. Þannig að ef þú ert að hugsa um að taka EQE-prófið, eða þekkir einhvern sem er að því, gæti þetta verið samfélagið og stuðningsnetið sem þú vissir ekki að þig vantaði.“

„CSP-stuðningurinn varð vendipunktur í lífi mínu. Ég hlaut ekki aðeins fyrsta flokks þjálfun og stuðning, heldur komst ég í tengsl við drífandi, örlátt og styðjandi fólk, sem margt er nú nánir vinir mínir.“

Anna Valborg Guðmundsdóttir

Evrópskur einkaleyfasérfræðingur hjá Össuri

Hvernig er sótt um þátttöku?

Aðeins þau sem hafa skráð sig í F, M1 eða M2 hluta EQE-prófsins árið 2026 geta nú sótt um stuðning. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2025.

Til að sækja um þátttöku í CSP 2025/2026 þarf að fylla út umsóknareyðublað á vef EPO.

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Kynningarbréf
  • Staðfesting frá vinnuveitanda
  • Staðfesting á skráningu til EQE-prófs árið 2026
  • Staðfesting á fastri búsetu á Íslandi (umsækjandi þarf að hafa búið á Íslandi í minnst sex mánuði).

Sjá skilyrði fyrir þátttöku (PDF)

Hugverkastofan fer yfir allar umsóknir og tilnefnir þátttakendur í stuðningsáætluninni í byrjun september. CSP stuðningsáætlunin hefst í október 2025.

Öllum umsækjendum verður svarað í tölvupósti.

Lesa nánar um CSP-stuðningsáætlunina á vef EPO.

Lesa nánar um EQE-hæfnisprófið á vef EPO.

Hægt er að hafa samband við EPO í gegnum sérstaka vefgátt til að senda spurningar varðandi CSP og EQE.

Þér er einnig velkomið að hafa samband við okkur hjá Hugverkastofunni með því að senda tölvupóst á hugverk@hugverk.is, hringja í síma 580 9400 eða senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum.