Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Heimsókn til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO)

828A0051

16. september 2026Alþjóðlegt samstarf

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, heimsóttu höfuðstöðvar Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) í München í vikunni.

Þær funduðu með António Campinos, forstjóra EPO, um framlag Íslands til nýsköpunar í Evrópu, hvernig einkaleyfi og önnur hugverkaréttindi geta stutt við vöxt á komandi árum og hvar tækifæri liggja til frekara samstarfs.

Heimsóknin var hluti af samráði Evrópsku einkaleyfastofunnar við aðildarríki og hagaðila vegna stefnumótunarverkefnisins „Scenarios for the Future 2025–2045“ þar sem rýnt er í þróun nýsköpunar og hugverkaréttinda á komandi áratugum.

Samstarf Hugverkastofunnar og Evrópsku einkaleyfastofunnar stendur á gömlum grunni en Ísland hefur átt aðild að Evrópska einkaleyfasamningnum frá 1. nóvember 2004. Árlegur samráðsfundur aðildarríkja EPO og verðlaunahátíð Hugvitsverðlauna EPO fyrir unga frumkvöðla (Young Inventors Prize) fóru fram í Reykjavík í fyrravor.

Evrópska einkaleyfastofan tekur við umsóknum um evrópsk einkaleyfi, rannsakar þær og veitir einkaleyfi sem geta tekið gildi í öllum 40 aðildarríkjum . Stofnunin er ein stærsta alþjóðastofnun í Evrópu með um 6.300 starfsmenn. Flest þeirra rúmlega 9000 einkaleyfa sem eru í gildi á Íslandi eru evrópsk einkaleyfi sem staðfest hafa verið hér á landi.

Heimsókn til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) - Hugverkastofan