Fréttir

Heimsókn til Hugverkastofu Evrópusambandsins

Eiríkur Sigurðsson27. maí 2025Alþjóðlegt samstarf
ISIPO Visit 24

Sendinefnd frá Hugverkastofunni heimsótti nýlega Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) sem hefur umsjón með skráningum vörumerkja og hönnunar í Evrópusambandinu (ESB).

Nefndin fundaði m.a. með João Negrão, forstjóra EUIPO, þar sem fjallað var um framkvæmd samstarfssamnings stofnananna frá árinu 2013 og um þýðingu samstarfsins í ljósi aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og innri markaðnum. Meðal annars var rætt um mikilvægi þess fyrir Hugverkastofuna að taka þátt í vinnu á vegum EUIPO sem varðar túlkun og framkvæmd laga og reglna, þar sem sambærileg lög og reglur gilda á sviði hugverkaréttar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig var rætt um gervigreind og hvernig hún hefur áhrif og nýtist í starfi stofnananna, um styrki og stuðning til frumkvöðla og nýtt höfundaréttarsetur EUIPO, auk annarra málefna. Þá fengu fulltrúar Hugverkastofunnar kynningu á því hvernig umsóknir um skráningu vörumerkja og hönnunar eru rannsakaðar hjá EUIPO.

Samstarfssamningur Hugverkastofunnar við EUIPO hefur m.a. leitt til aðildar stofnunarinnar að TM View og TM Class vegna vörumerkja og Design View og Design Class vegna hönnunar. Þá gefur samningurinn færi á endurmenntun starfsfólks Hugverkastofunnar á sviði hugverkaréttinda og starfsþjálfun hjá EUIPO í lengri eða skemmri tíma. Þá á Hugverkastofan áheyrnarfulltrúa á grundvelli EES-samningsins á samstarfsfundum aðildarríkja ESB vegna vörumerkja, hönnunar og framfylgni (e. enforcement) hugverkaréttinda og sækir reglulega fundi á vegum EUIPO. Hugverkastofan hefur einnig tekið þátt í og innleitt helstu samstarfsverkefni EUIPO varðandi túlkun á ákvæðum laga um vörumerki og hönnun.