Fréttir
Hugverkastofan á allsherjarþingi WIPO í Genf

Fulltrúar Hugverkastofunnar tóku nýverið þátt í allsherjarþingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization, WIPO), sem haldið var í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Genf í Sviss, dagana 8.–17. júlí 2025. Þingið er stærsti árlegi vettvangur aðildarríkja WIPO þar sem sett er stefna um þróun alþjóðlegs hugverkaréttarkerfis og farið yfir starfsemi stofnunarinnar. Í ár sóttu hátt í 1.600 fulltrúar þingið, þar á meðal Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Brynhildur Pálmarsdóttir, yfirlögfræðingur og Elfa Íshólm Ólafsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs.
Í tengslum við þingið fundaði Borghildur með Daren Tang, forstjóra WIPO. Þau ræddu m.a. helstu áherslumál stofnananna og Iceland-málið. Fundurinn undirstrikaði gott samstarf Íslands og WIPO og mikilvægi þátttöku lítilla ríkja í alþjóðlegri stefnumótun á þessu sviði. Í tengslum við þingið undirritaði Borghildur einnig fyrir Íslands hönd nýjan alþjóðlegan samning um hönnunarvernd, svokallaðan Riyadh-samning, sem miðar að því að samræma skráningarskilyrði milli landa og einfalda ferli fyrir hönnuði sem vilja tryggja vernd á alþjóðavísu.

Einn af hápunktum þingsins var afhending WIPO Global verðlaunanna, þar sem íslenskt fyrirtæki, Carbfix, hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem nýta skráningu hugverkaréttinda á framúrskarandi hátt til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og stuðla að sjálfbærri þróun. Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, fékk einnig sérstaka viðurkenningu sem besti kvenfrumkvöðullinn.

Skrifað var undir aðgerðaráætlun með portúgölsku hugverkastofunni í tengslum við viljayfirlýsingu frá því fyrr á árinu og fundað með fastanefnd Íslands í Genf. Þá tóku fulltrúar Hugverkastofunnar virkan þátt í fjölmörgum vinnufundum og samráðsfundum með samstarfsstofnunum og fulltrúum annarra aðildarríkja þar sem rætt var um þróun alþjóðlegra skráningarkerfa, áætlanir WIPO fyrir næsta starfsár og leiðir til að styðja við frumkvöðla, smærri fyrirtæki og ungt fólk í nýtingu hugverkaréttinda.
Í opnunarræðu þingsins benti Tang á að þrátt fyrir óvissu og áskoranir á heimsvísu héldi nýsköpun áfram að dafna. „Á hverri mínútu berast yfir 40 umsóknir um skráningu hugverkaréttinda einhvers staðar í heiminum sem dregur fram mikilvægi hugverkaréttinda sem drifkrafts verðmætasköpunar á 21. öldinni,“ sagði hann meðal annars.
„Á hverri mínútu berast yfir 40 umsóknir um skráningu hugverkaréttinda einhvers staðar í heiminu.“
Daren Tang, forstjóri WIPO
