Fréttir
Hugverkastofan innleiðir HDB-gagnagrunn Evrópusambandsins fyrir vörur og þjónustu

Frá og með deginum í dag verður hægt að nota enskar tilgreiningar úr samræmdum gagnagrunni Evrópusambandsins fyrir vöru- og þjónustulista þegar sótt er um skráningu vörumerkja hjá Hugverkastofunni. Í gagnagrunninum (The Harmonised Database, HDB) eru um 78.000 tilgreiningar á vörum og þjónustu sem hafa verið samþykktar af Evrópsku hugverkastofunni EUIPO. Tilgreiningarnar eru hluti af leitarvél EUIPO fyrir vörur og þjónustu – TM Class sem Hugverkastofan hefur verið aðili að frá árinu 2013. Innleiðingin getur einfaldað og flýtt fyrir skráningu vörumerkja hjá Hugverkastofunni.
TMclass má nota við leit að tilgreiningum vöru- og þjónustu við undirbúning vörumerkjaumsókna. Leitarvélin veitir aðgang að tilgreiningum í NICE flokkunarkerfinu og HDB og þar er hægt að fletta upp samþykktum þýðingum á tilgreiningum á vörum og þjónustu á 44 tungumálum. Hugverkastofan vinnur nú að þýðingu HDB tilgreininganna á íslensku og þegar því verkefni lýkur verður hægt að fletta upp samþykktum þýðingum á tilgreiningum úr og í íslensku í TMclass.
Alls nota nú 30 hugverkastofur utan ESB tilgreiningar úr HDB gagnagrunninum. 94 hugverkastofur um allan heim eru aðilar að leitarvél TMclass, þar á meðal ARIPO, OAPI, WIPO og EUIPO.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á euipn.org og euipo.europa.eu/ec2
