Innleiðing á EUIPO verkefninu CP14

11. febrúar 2026Alþjóðlegt samstarfVörumerki
Hugverkastofan og Hugverkastofa Evrópusambandsins hafa í sameiningu útbúið innleiðingarskjal í tengslum við verkefnið CP14, sem fjallar um mat á því hvenær vörumerki teljast andstæð lögum eða stríða gegn almennu siðgæði.
Innleiðingarskjalið byggir á verkefninu eins og það var samþykkt á samstarfsvettvangi EUIPO, European Union Intellectual Property Network (EUIPN) en er lagað að íslenskri löggjöf og fordæmum. Það veitir því skýringar á því hver viðmiðin eru hér á landi um mat á slíkum aðstæðum og hvernig það samræmist framkvæmd í Evrópu.
Samræmingarverkefni EUIPO hafa það að meginmarkmiði að auka skýrleika, gagnsæi og fyrirsjáanleika í tengslum við meðhöndlun vörumerkja- og hönnunarumsókna. Hugverkastofan hefur á liðnum árum unnið markvisst að innleiðingu þessara verkefna (á ensku) og eru þau aðgengileg á vefsíðu stofnunarinnar.
