Fréttir

Innleiðing á EUIPO verkefnum CP8 og CP9

Margrét Hjálmarsdóttir01. október 2025Alþjóðlegt samstarf
Euipo

Hugverkastofan og Hugverkastofa Evrópusambandsins (EUIPO) hafa í sameiningu útbúið tvö innleiðingarskjöl í tengslum við annars vegar notkun vörumerkja á öðru formi en þau eru skráð (CP8) og hins vegar sérkenni þrívíddarmerkja (e. shape marks) sem innihalda orð/myndir þegar lögunina sem slíka skortir sérkenni (CP9).

Innleiðingarskjölin byggja á verkefnunum eins og þau voru samþykkt á samstarfsvettvangi EUIPO, European Union Intellectual Property Network (EUIPN) en eru löguð að íslenskri löggjöf og fordæmum. Þau veita því aðgengilegar skýringar á því hver viðmið hér á landi eru varðandi skráningarhæfi slíkra merkja og hvernig þau samræmast framkvæmd í öðrum ríkjum.

Samræmingarverkefni EUIPO hafa það að meginmarkmiði að auka skýrleika, gagnsæi og fyrirsjáanleika í tengslum við meðhöndlun vörumerkja- og hönnunarumsókna. Hugverkastofan hefur á liðnum árum unnið markvisst að innleiðingu þessara verkefna (á ensku) og eru þau aðgengileg á vef stofnunarinnar.