Fréttir

Ísland gerist aðili að DESIGNclass Hugverkastofu Evrópusambandsins

Eiríkur Sigurðsson14. apríl 2025Alþjóðlegt samstarfHönnun
Designclass

Hugverkastofan er frá og með 14. apríl 2025 formlega orðin aðili að DESIGNclass, alþjóðlegu flokkunartóli á sviði hönnunar, sem rekið er af Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO).

Þátttaka Hugverkastofunnar felur í sér að stofnunin samþykkir tilgreiningar úr samræmda gagnagrunninum um vörutilgreiningar (Harmonised Database of Product Indications – HDBPI) sem notaður er innan DESIGNclass. Tilgreiningar í hönnunarskráningu lýsa því hvers konar vöru hönnunarskráningin verndar.

Ísland er tuttugasta ríkið utan Evrópusambandsins til að taka þátt í DESIGNclass og viðurkenna vörutilgreiningarnar úr þessum gagnagrunni. Alls eru nú 46 hugverkastofur aðilar að DESIGNclass.

DESIGNclass gerir notendum kleift að leita að og þýða vörutilgreiningar á allt að 30 tungumálum, sem auðveldar skráningu hönnunar í mörgum löndum og stuðlar að samræmingu og gagnsæi í hönnunarskráningum á alþjóðavísu, en Hugverkastofan mun brátt hefja vinnu við íslenska þýðingu tilgreininganna í DESIGNclass. Um er að ræða sambærilegt tól og TMclass, sem notað hefur verið undanfarin ár í tengslum við flokkun vöru- og þjónustutilgreininga fyrir vörumerkjaumsóknir, með góðum árangri.

Aðild Íslands að DESIGNclass er liður í alþjóðlegu samstarfi Hugverkastofunnar og byggir á samstarfsverkefnum EUIPO varðandi túlkun á ákvæðum laga um vörumerki og hönnun.