Fréttir

Listaverkasamkeppni grunnskóla

Eiríkur Sigurðsson07. febrúar 2023Alþjóðlegt samstarf
Istock 494182640 Börn Að Mála

Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá undirritun evrópska einkaleyfasamningsins stendur Evrópska einkaleyfastofan (EPO) fyrir listaverkasamkeppni meðal grunnskóla aðildarríkja samningsins um sjálfbærni, tækni og nýsköpun.

Þau listaverk sem valin verða fá í verðlaun 3.000 evru framlag til sjálfbærniverkefna í viðkomandi skóla. Hægt er að senda inn myndir af listaverkum í keppnina til 15. apríl.

Nánari upplýsingar er að finna á vef EPO.