Fréttir

Norrænt samstarf á sviði einkaleyfa styrkt

Eiríkur Sigurðsson31. mars 2023Alþjóðlegt samstarf
Image

Í síðustu viku var undirrituð viljayfirlýsing milli Nordic Patent Institute (NPI), sem er milliríkjastofnun í eigu Íslands, Danmerkur og Noregs og hugverkastofa Svíþjóðar og Finnlands, um aukið samstarf á sviði rannsókna á alþjóðlegum einkaleyfisumsóknum.

Markmið samstarfsins er að skiptast á hugmyndum og upplýsingum um fyrirmyndar starfshætti við alþjóðlegar einkaleyfaleitir og -rannsóknir samkvæmt samstarfssáttmálanum um einkaleyfi (Patent Cooperation Treaty, PCT). Stofnanirnar hyggjast einnig vinna saman að öðrum sameiginlegum hagsmunamálum, einkum varðandi gæðamál og í tengslum við samræmingarverkefni Evrópsku einkaleyfastofunnar (European Patent Office, EPO), m.a. varðandi meðhöndlun einkaleyfisumsókna. Þá er stefnt að því að stofnanirnar samræmi áherslur sínar í samskiptum við EPO og almennt á alþjóðavettvangi.

Yfirlýsingin var undirrituð í München 22. mars síðastliðinn í tengslum við fund framkvæmdaráðs EPO. Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og stjórnarformaður NPI undirritaði hana ásamt forstjórum sænsku og finnsku hugverkastofanna.

Borghildur segist fyrir hönd NPI vera afar ánægð með undirritun viljayfirlýsingarinnar sem veiti tækifæri til þess að efla enn frekar gott samstarf við sænsku og finnsku hugverkastofurnar.

„Við hlökkum til samstarfsins sem mun gera okkur fært að veita norrænum umsækjendum um einkaleyfi betri þjónustu og þannig styðja við norræna nýsköpun.“

Ísland á og rekur í samstarfi við Noreg og Danmörku Nordic Patent Institute, NPI sem er leitar- og rannsóknarstofnun vegna einkaleyfa. NPI er stýrt af hugverkastofum aðildarríkjanna og hefur forstjóri Hugverkastofunnar verið stjórnarformaður NPI frá árinu 2011. NPI hefur umsjón með samtalsleitum sem Hugverkastofan býður viðskiptavinum sínum upp á og getur auk þess framkvæmt leitir að þekktri tækni á markaði eða frelsi til athafna á markaði (e. freedom to operate) áður en haldið er með uppfinningu í umsóknarferli.