Fréttir

Nýr alþjóðlegur samningur um hönnun undirritaður í Riyadh í Sádi-Arabíu

Eiríkur Sigurðsson26. nóvember 2024Alþjóðlegt samstarfHönnun
Undirskrift Rihyad Design Treaty

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, undirritaði lokagerð nýs alþjóðlegs samnings um vernd hönnunar á ráðstefnu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) í Riyadh í Sádi-Arabíu á föstudaginn var. Samningurinn, sem 190 aðildarríki WIPO standa að, markar tímamót í alþjóðlegri hönnunarvernd en með honum er stefnt að því að samræma reglur um hönnunarvernd og minnka flækjustig í ferlum sem hönnuðir þurfa að fara í gegnum til að tryggja vernd fyrir sköpun sína. Fimmtán aðildarríki WIPO þurfa að fullgilda samninginn áður en hann getur tekið gildi.

„Þetta er mjög jákvætt skref sem getur auðveldað íslenskum hönnuðum að vernda verk sín á alþjóðavísu,“ segir Borghildur. „Það er frábært að samkomulag hafi náðst á ráðstefnunni með samningi sem tryggir samræmda vernd í flestum löndum heims. Evrópusambandið hefur einnig uppfært sínar reglur um hönnunarvernd og það má gera ráð fyrir að breytingar á evrópska regluverkinu, ásamt ákvæðum þessa mikilvæga samnings, verði teknar inn í íslenska löggjöf á næstu árum.“

Brynhildur Pálmarsdóttir, yfirlögfræðingur og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, sóttu ráðstefnuna í Riyadh fyrir Íslands hönd.
Brynhildur Pálmarsdóttir, yfirlögfræðingur og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, sóttu ráðstefnuna í Riyadh fyrir Íslands hönd.

Helstu atriði nýs samning eru meiri sveigjanleiki í hvernig umsækjendur lýsa hönnun í umsókn (teikningar, ljósmyndir eða jafnvel myndbönd), skýr skilgreining á formlegum umsóknardegi og samræming á fleiri formskilyrðum umsókna, svo sem á endurnýjun skráninga. Þá var fallist á að frestur/griðtími til að sækja um skráningu eftir fyrstu birtingu á hönnun verði samræmdur í 12 mánuði, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, og að hægt sé að halda hönnunarumsókn óbirtri í a.m.k. sex mánuði frá umsóknardegi.

Í fréttatilkynningu Alþjóðahugverkastofnunarinnar er haft eftir Daren Tang, forstjóra WIPO: „Eftir 20 ára vinnu er Riyadh samningurinn sögulegur áfangi í hönnunarvernd. Samningaviðræðurnar gáfu okkur tækifæri til að einbeita okkur að málefni sem WIPO hefur ekki haft í brennidepli í nokkurn tíma – hönnun og hönnuðum, og það er mjög ánægjulegt. Samningurinn er líka lýsandi dæmi um hvernig alþjóðasamvinna getur bætt heiminn.“

Um WIPO

Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) er stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem þjónar frumkvöðlum og höfundum um allan heim með það að markmiði að hugmyndir þeirra komist á markað og stuðli að betri lífsgæðum alls staðar.
WIPO býður upp á þjónustu sem gerir höfundum og frumkvöðlum kleift að vernda og kynna hugverk sín þvert á landamæri. Stofnunin er einnig vettvangur fyrir umræðu um hugverkarétt og gögn og upplýsingar frá WIPO styðja við ákvarðanatöku um allan heim.