Fréttir
Opið fyrir tilnefningar til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2026

Þekkir þú til uppfinningamanns eða frumkvöðlateymis sem á skilið alþjóðlega viðurkenningu? Hefur uppfinningin hlotið evrópskt einkaleyfi og haft jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi eða atvinnulíf? Nú er tækifæri til að senda inn tillögu að því að viðkomandi verði tilnefnd til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2026 (European Inventor Award).
Frestur til að senda inn tillögur að tilnefningum er til og með 30. september 2025.
Verðlaunin eru veitt af Evrópu einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) og eru meðal virtustu viðurkenninga á sviði nýsköpunar og hugverkaréttinda í Evrópu. Þau hafa verið veitt frá árinu 2006 og eru nú veitt annað hvert ár.
Senda inn tillögu á vef EPO.
Senda má inn tillögur að tilnefningum uppfinningamanna í fimm flokkum:
- Iðnaður
- Rannsóknir
- Smærri og meðalstór fyrirtæki
- Ævistarf
- Uppfinningamenn utan EPO-ríkja
Hægt er að senda inn tillögur að tilnefningum uppfinningamanna sem eiga a.m.k. eitt evrópsk einkaleyfi í gildi, í samræmi við skilyrði hvers flokks. Dómnefnd sem skipuð er uppfinningamönnum og frumkvöðlum sem hafa áður verið tilnefndir til verðlaunanna og öðrum sérfræðingum á sviði nýsköpunar og hugverkaréttinda metur uppfinningarnar með hliðsjón af tæknilegri nýbreytni, samfélagslegum og umhverfislegum ávinningi og efnahagslegum áhrifum. Þrír einstaklingar eða teymi eru tilnefnd í hverjum flokki og er boðið að vera viðstödd verðlaunaafhendinguna sem verður haldin í Berlín sumarið 2026.
Ísland tvisvar átt fulltrúa á meðal tilnefndra
Íslenskir uppfinningamenn hafa verið tilnefndir til verðlaunanna í tvö undanfarin skipti sem þau hafa verið veitt.
Árið 2024 var Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, tilnefndur í flokki smárra og meðalstórra fyrirtækja, fyrir uppfinningu sína á því hvernig nota megi fiskroð til að græða sár.
Árið 2023 voru Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, stofnendur Oculis, tilnefndir í flokki rannsókna fyrir uppfinningu sem gerir mögulegt að meðhöndla augnsjúkdóma með augndropum í stað sprauta.
Hugverkstofan hvetur öll sem starfa á sviði vísinda, rannsókna, nýsköpunar og hugverkaréttinda og almenning til að taka þátt og tilnefna íslenska uppfinningamenn sem eiga skilið að fá viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi.
