Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Opið fyrir tilnefningar til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna til 1. október

Europeaninventoraward 4

15. ágúst 2023Alþjóðlegt samstarf

Þekkir þú til frumkvöðla sem eiga eftir að breyta heiminum? Eiga þeir einkaleyfi í Evrópu? Þá ættir þú að tilnefna þá til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 (European Inventor Award). Hægt er að senda inn tilnefningar til 1. október hér.

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin hafa verið veitt af Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) frá árinu 2006 og eru ein virtustu verðlaun á sviði nýsköpunar í Evrópu. Verðlaun eru veitt í flokkunun: rannsóknir, lítil og meðalstór fyrirtæki, lönd utan EPO, ævistarf og ungir uppfinningamenn.

Markmiðið með verðlaununum er að heiðra einstaklinga og teymi sem hafa fundið lausnir við sumum stærstu áskorunum samtímans. Óháð dómnefnd, sem samanstendur af aðilum sem áður hafa komist í úrslit verðlaunanna, velur þá uppfinningamenn og teymi sem komast í úrslit og svo verðlaunahafa úr þeim hópi. Dómnefndin leggur mat á uppfinningarnar og áhrif þeirra með tilliti til tæknilegrar framþróunar, þróunar samfélags og sjálfbærni og hagsældar. Allir uppfinningamenn sem tilnefndir eru þurfa að hafa hlotið einkaleyfi í Evrópu fyrir uppfinningar sínar. 

Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, stofnendur Oculis, voru meðal þriggja rannsóknahópa sem tilnefndir voru til verðlauna í flokknum rannsóknir 2023 fyrir tækni sem gerir kleift að þróa lyf í formi augndropa sem hægt er að ferja í afturhluta augans.