Fréttir

Opið fyrir tilnefningar til WIPO verðlaunanna

Eiríkur Sigurðsson22. mars 2023Alþjóðlegt samstarf
Wipo Global Awards

Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) óskar eftir tilnefningum til WIPO verðlaunanna 2023. Óskað er eftir tilnefningum frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum með allt að 300 starfsmenn sem hafa notað skráð hugverkaréttindi (einkaleyfi, skráð vörumerki eða hönnun) til að vaxa og dafna á alþjóðlegum markaði og hafa jákvæð áhrif á heiminn. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 31. mars.

Af innsendum tillögum verða 20 fyrirtæki tilnefnd til verðlaunanna af WIPO og verða þau fyrirtæki kynnt á vef stofnunarinnar og víðar. Af þeim munu allt að sjö fyrirtæki hljóta WIPO verðlaunin. Forsvarsmönnum þeirra verður boðið til verðlaunahátíðar í Genf í júlí og að sækja einstaklingsbundna þjálfun í notkun hugverkaréttinda, auk þess sem verðlaunafyrirtækin verða kynnt á fjölbreyttan hátt af WIPO um allan heim.

Nánari upplýsingar og skráning