Fréttir
Rafutanborðsmótor, kaffivél og Maria Benktzon hljóta DesignEuropa hönnunarverðlaunin 2023

Design Europa hönnunarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Berlín 5. september. Þau eru veitt af Hugverkastofu Evrópusambandsins og markmið þeirra er að vekja athygli á framúrskarandi iðnhönnun og mikilvægi þess að verja hönnun með skráningu.
Í flokki lítilla og meðalstórra fyrirtækja vann slóvneska fyrirtækið Remigo fyrir fallegan og hljóðlátan raf-utanborðsmótor.
Í iðnaðarflokki vann sjálfvirk expressóvél frá ítalska fyrirtækinu SMEG.
Sænski hönnuðurinn Maria Benktzon hlaut heiðursverðlaun fyrir ævistarfið. Ein þekktasta hönnun hennar er ergónómískur brauðhnífur og önnur áhöld fyrir gigtarsjúklinga og aðra hreyfihamlaða.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana er að finna hér.



