Fréttir
Samkomulag undirritað um samstarf við EUIPO

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, og Christian Archambeau, framkvæmdastjóri Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) undirrituðu í gær samkomulag um áframhaldandi samstarf milli stofnanna tveggja á ýmsum sviðum. Með samkomulaginu styrkist enn frekar það góða samstarf sem Hugverkastofan og EUIPO hafa átt í gegnum árin.
EUIPO fer með málefni Evrópuvörumerkja (EUTM) og Bandalagshönnun (Community design). Auk þess starfar stofnunin náið með hugverkastofum í Evrópu og alþjóðlegum samstarfsaðilum á ýmsum sviðum tengdum hugverkum og hugverkarétti. Stofnunin er staðsett í Alicante á Spáni en þar starfa um 1.100 manns.
