Fréttir
Samningur endurnýjaður um rannsóknir á íslenskum einkaleyfisumsóknum

Í gær rituðu Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Sune Stampe Sørensen, forstjóri dönsku hugverkastofunnar (Patent- og Varemærkestyrelsen), undir samning um áframhaldandi þjónustu dönsku stofunnar við leit og rannsóknir í tengslum við íslenskar einkaleyfisumsóknir. Samstarfið hefur staðið yfir í áratugi og skilað báðum stofnunum miklum ávinningi. Markmiðið með endurnýjun samningsins er að styðja við áframhaldandi fjölgun íslenskra einkaleyfisumsókna.
Norðurlöndin eru í fararbroddi á sviði nýsköpunar og tækniþróunar í heiminum. Öflugar norrænar hugverkastofur eru mikilvægar til að viðhalda og efla sterka samkeppnisstöðu landanna, ekki síst þegar kemur að stuðningi við lítil og meðalstór fyrirtæki. Með nánara samstarfi hugverkastofanna er stefnt að því að bæta þjónustu og gera einkaleyfakerfið á Norðurlöndunum skilvirkara og betra.
