Fréttir

Samstarf eflt við portúgölsku hugverkastofuna

Eiríkur Sigurðsson31. mars 2025Alþjóðlegt samstarf
Borghildur Og Ana

Sendinefnd frá Hugverkastofunni heimsótti portúgölsku hugverkastofuna (INPI) í Lissabon í síðustu viku. Tilgangur heimsóknarinnar var að fræðast um aðgerðir, starfsvenjur og stefnur til auka hlut kvenna á sviði hugverkaréttinda. Í lok heimsóknarinnar undirrituðu Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Ana Bandeira, forstjóri INPI, viljayfirlýsingu um aukið samstarf að viðstöddum aðstoðardómsmálaráðherra Portúgals, Maria Clara Figueiredo.

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Ana Bandeira, forstjóri INPI, ásamt íslensku sendinefndinni og starfsmönnum INPI.
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Ana Bandeira, forstjóri INPI, ásamt íslensku sendinefndinni og starfsmönnum INPI.

Með heimsókninni endurgalt Hugverkastofan heimsókn forstjóra INPI, ásamt fylgdarliði, fyrr í mánuðinum. Heimsóknirnar og viljayfirlýsingin eru hluti af fræðsluverkefni INPI um konur og hugverkaréttindi sem styrkt er af Uppbyggingarsjóði EES en meðal markmiða sjóðsins er að styrkja tvíhliða samskipti Portúgals og Íslands með áherslu á valdeflingu kvenna í mikilvægum geirum.

Í heimsókninni til Lissabon gafst íslensku sendinefndinni m.a. tækifæri til að kynnast starfi GAPI tækniyfirfærsluskrifstofa heilbrigðisvísindadeildar Nova háskólans (Nova Medical School) og Tækniháskólans í Lissabon (Instituto Superior Técnico). GAPI skrifstofurnar eru starfræktar í yfir 30 portúgölskum háskólum og tæknisetrum. Þær voru stofnaðar af INPI og njóta ýmiss konar stuðings stofnunarinnar. Hlutverk þeirra er að efla nýsköpun við í háskóla- og rannsóknasamfélaginu, m.a. með því að veita fræðslu um hugverkaréttindi og aðstoða vísindamenn við einkaleyfisumsóknir.

Heimsóknin var mjög ánægjuleg og fræðandi og fulltrúar Hugverkastofunar hlakka til nánara samstarfs.