Fréttir
Skarðshlíðarskóli vinnur listaverkasamkeppni Evrópsku einkaleyfastofunnar EPO

Nemendur Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði eru meðal sigurvegara í listaverkasamkeppni Evrópsku einkaleyfastofunnar (European Patent Office, EPO) sem haldin var í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá undirritun evrópska einkaleyfasamningsins.
Alls sendu 3612 nemendur í 56 skólum frá 19 löndum inn listaverk í keppnina. Þrír aðrir skólar hlutu verðlaun: The British School í Hollandi, Empowering Youth í Kambódíu og Europäische Schule í München, Þýskalandi. Í verðlaun hlýtur Skarðshlíðarskóli 3.000 evrur, jafnvirði um 450.000 króna, til að nota við fræðslustarf um sjálfbærni í tengslum við tækni, listir eða nýsköpun.
„Það er mikill heiður að fá þessi verðlaun og Evrópska einkaleyfastofan á hrós skilið fyrir þessa frábæru listaverkakeppni. Það er mjög jákvætt þegar listsköpun barna er gert hátt undir höfði með keppni eins og þessari og verðlaunin eru okkur hvatning til að halda áfram á braut sjálfbærni og sköpunar!“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðsmýrarskóla.
Vinningsverkið heitir Vinátta og var unnið í myndmennt veturinn 2019-2020 af öllum nemendum skólans undir stjórn Hafdísar Baldursdóttur, myndmenntakennara. Hafdís lýsir verkinu svo: „Hver og einn nemandi gerði Origami kassa, botn og lok, límdi saman og vann svo mynd úr pappírsafgöngum sem límd var á lokið. Kassinn var gerður úr blaðsíðum úr gömlum landakortabókum sem átti að henda. Allir kassarnir voru svo límdir saman í eitt stórt listaverk.“ Hún segir að verkið hangi nú uppi á vegg í húsnæði skólans, skólanum til prýði og gestum og gangandi til ánægju.
Hugverkastofan óskar Skarðshlíðarskóla innilega til hamingju með verðlaunin.
Ísland gerðist Ísland aðili að Evrópsku einkaleyfastofunni árið 2004 og í kjölfarið gekk Evrópski einkaleyfasamningurinn (EPC – European Patent Convention) í gildi hér á landi með breytingu á lögum um einkaleyfi. Aðildarríki samningsins eru alls 39 ríki í Evrópu og þau reka í sameiningu Evrópsku einkaleyfastofuna. Hugverkastofan á fulltrúa í fjölda nefnda og ráða á hennar vegum, m.a. fjármála-, laga- og tækninefndum sem og framkvæmdaráði. Forstjóri Hugverkastofunnar hefur verið varaformaður framkvæmdaráðsins frá árinu 2019 og var í árslok 2021 endurkjörin til næstu 3ja ára.
