Fréttir
Viljayfirlýsing undirrituð við slóvensku hugverkastofuna

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, og Karin Žvokelj, forstjóri slóvensku hugverkastofunnar, skrifuðu undir viljayfirlýsingu í nýliðinni viku um aukið samstarf stofnananna.
Samkvæmt yfirlýsingunni munu stofnanirnar miðla upplýsingum sín á milli um þróun þjónustu, þróun hugverkaréttar í löndunum, alþjóðlegt samstarf, kynningarmál og aðgerðir gegn fölsunum og eftirlíkingum.
Á fundi forstjóra slóvensku hugverkastofunnar með stjórnendum Hugverkastofunnar var kynnt metnaðarfull hugverkastefna slóvensku ríkisstjórnarinnar sem unnin hefur verið í samráði við ráðuneyti og hagaðila. Nú er unnið að fjölmörgum aðgerðum á grundvelli hennar til að styðja við nýsköpun og efla vitund um mikilvægi þess að skrá hugverkaréttindi. Þá var einnig rætt um þróun staðla til að meta verðmæti skráðra hugverkaréttinda, meðal annars í tengslum við lánveitingar með veði í hugverkaréttindum. Einnig kom fram að stofnunin hefur þróað bráðabirgðaeinkaleyfi (provisional patent) sem gerir uppfinningamönnum kleift að tryggja sér tímabundinn einkarétt á uppfinningum með því að skila aðeins inn einfaldri lýsingu.

Fulltrúar Hugverkastofunnar kynntu m.a. vel heppnaða stafræna vegferð stofnunarinnar, stafræna þjónustu, vef og kynningarmál. Fram kom jafnframt að slóvenskir aðilar eiga skráð 98 vörumerki, 15 gild einkaleyfi og fimm hönnunarskráningar á Íslandi.
