Fréttir

Visegrad Patent Institute (VPI) gerist aðili að GPPH

05. janúar 2018Alþjóðlegt samstarf
Heimurinn

Þann 6. janúar 2018 bætist Visegrad Patent Institute (VPI), sem er alþjóðleg rannsóknarstofnun í eigu Tékklands, Ungverjalands, Póllands og Slóvakíu, í hóp þeirra ríkja sem aðild eiga að sérstöku samkomulagi um flýtimeðferð einkaleyfisumsókna (e. Global Patent Prosecution Highway – GPPH). Þau eru því orðin 25 talsins.