Fréttir
Atmonia - einkaleyfi á aðferð og kerfi til að framleiða ammóníak með rafgreiningu

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Atmonia er að þróa byltingarkennda rafgreiningartækni til að framleiða ammóníak en það er mikilvægt efnasamband sem m.a. er notað í áburð og sem rafeldsneyti. Aðferðir við framleiðslu þess hafa lítið breyst í áratugi, eru orkufrekar og losa mikið af gróðurhúsalofttegundum.
Rafgreiningartækni Atmonia byggir á notkun nýstárlegra efnahvata til að kljúfa vatn og nitur úr andrúmsloftinu með rafmagni og mynda ammóníak. Tæknin hefur marga kosti umfram hina hefðbundnu Haber-Bosch aðferð sem er notuð í dag:
- Minni orkunotkun og notkun endurnýjanlegrar orku
- Engin losun gróðurhúsalofttegunda
- Hagkvæmni: Með minni orkunotkun og einfaldara ferli getur framleiðslan orðið hagkvæmari til lengri tíma litið.
Egill Skúlason er prófessor í efnaverkfræði við Háskóla Íslands, einn stofnenda Atmonia og framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar. Hann segir að fyrir fyrirtæki eins og Atmonia, sem byggi á nýsköpun og tækniþróun, sé mjög mikilvægt að tryggja einkaleyfi á hugverkum fyrirtækisins enda veiti þau vernd gegn því að aðrir geti notað uppfinningar, aðferðir og tækni fyrirtækisins án leyfis.
„Það er mjög mikilvægt fyrir fyrirtækið að vera með einkaleyfi á þessum efnahvötum sem við höfum verið að finna upp til þess að gera okkur kleift að þróa ferlið áfram og fá fjármagn og fjárfesta til að koma inn í fyrirtækið,“ segir Egill. „Það eru komin núna tíu ár síðan við sóttum um fyrsta einkaleyfið hérna á Íslandi fyrst og svo var það yfirfært í alþjóðlega umsókn. Svo sóttum við um þrjú ný einkaleyfi í fyrra.“
Egill mælir með því að uppfinningamenn panti samtalsleit hjá Hugverkastofunni áður en ákveðið er hvort sótt sé um einkaleyfi á uppfinningu eða ekki. „Þá er maður að skoða öll einkaleyfi sem hafa verið birt og kanna hvort til séu einhver einkaleyfi fyrir sömu eða svipaðar uppfinningar. Það er mjög mikilvægt að vita það áður en farið er út í það ferli að sækja um einkaleyfi,“ segir hann að lokum.
