Fréttir
Einu evrópsku einkaleyfi hleypt af stokkunum

Kerfi fyrir eitt evrópskt einkaleyfi (Unitary Patent) var tekið í notkun í dag, 1. júní 2023. Upptaka kerfisins markar tímamót í sögu evrópsks innri markaðar og í evrópskri hugverkavernd.
Samkvæmt Evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) hefur nýja kerfið umtalsverða kosti fyrir umsækjendur um einkaleyfi og eigendur einkaleyfa sem m.a. felast í lægri kostnaði, betri verkferlum, meira gagnsæi og betra réttaröryggi.
Frá og með deginum í dag geta uppfinningamenn sótt um eitt evrópskt einkaleyfi með einni umsókn, greitt eitt gjald fyrir endurnýjun og átt mál undir einu réttarkerfi fyrir sameiginlega einkaleyfadómstólnum (Unified Patent Court, UPC). Sameiginlegi einkaleyfadómstóllinn, sem einnig hefur starfsemi sína í dag, er nýtt, miðstýrt, evrópskt dómskerfi, sérhæft fyrir mál sem varða einkaleyfi.
17 ríki Evrópusambandsins eru aðilar að nýja kerfinu Það eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Portúgal, Slóvenía og Svíþjóð og gert er ráð fyrir að fleiri aðildarríki ESB gerist aðilar í nánustu framtíð. Ísland stendur utan nýja kerfisins en verður áfram þátttakandi í samstarfi um evrópsk einkaleyfi á vegum Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) ásamt mörgum öðrum ríkjum, innan og utan Evrópusambandsins. Því kerfi verður viðhaldið áfram, samhliða nýja kerfinu.
EPO mun sjá um að taka við umsóknum, halda utan um einkaleyfaskrá og sjá alfarið um rannsóknir og veitingu eins evrópsks einkaleyfis. Það er mikil einföldun frá núverandi kerfi þar sem fullgilda þarf evrópsk einkaleyfi í þeim löndum sem ætlunin er að fá einkaleyfi í. Þá er ekki þörf á því í nýja kerfinu að þýða einkaleyfisumsóknir á mörg tungumál, heldur er nægjanlegt að leggja þær fram á á ensku, frönsku eða þýsku.
Árgjöld af einu evrópsku einkaleyfi eru greidd beint til EPO og nema um 5000 evrum fyrir fyrstu tíu árin. EPO mun birta fyrstu nýju einkaleyfaumsóknirnar í nýja kerfinu 7. júní næstkomandi.
Sameiginlegi einkaleyfadómstóllinn
Sameiginlegi einkaleyfadómstóllinn hefur einnig starfsemi sína í dag. Hann var stofnaður á grunni alþjóðlegs samstarfssamnings ESB-ríkjanna og verður aðaldómsvald fyrir einkaleyfamál í Evrópu. Um er að ræða umtalsverða breytingu frá núverandi kerfi þar sem hlutverk nýja dómstólsins verður að fjalla um ágreiningsmál um gildi einkaleyfa og brota á þeim, bæði þeirra sem gefin eru út sem eitt evrópskt einkaleyfi og þeirra sem gildi hafa í einstökum ríkjum. Ekki þarf því lengur að reka mál vegna evrópskra einkaleyfa í mörgum ríkjum samtímis með hugsanlega ólíkum niðurstöðum. Í nýja dómstólnum eru allir dómarar sérfræðingar í hugverkarétti og reikna má með að dómstóllinn muni skapa samræmda dómaframkvæmd sem muni auka réttarvissu og gagnsæi einkaleyfakerfisins í Evrópu.
Grein Margrétar Hjálmarsdóttur um eitt evrópskt einkaleyfi
Upptökur af fyrirlestrum á fræðslufundi Hugverkastofunnar um eitt evrópskt einkaleyfi
