Fréttir

Eitt evrópskt einkaleyfi verður að veruleika í júní

Eiríkur Sigurðsson22. febrúar 2023Einkaleyfi
Picture1

Þýska ríkistjórnin fullgilti í síðustu viku samning um nýjan sameiginlegan evrópskan einkaleyfadómstól (Unified Patent Court Agreement - UPCA). Með staðfestingunni er síðustu hindruninni rutt úr vegi fyrir nýju kerfi eins samræmds einkaleyfis í Evrópusambandinu (Unitary Patent) sem hleypt verður af stokkunum 1. júní næstkomandi. Ísland stendur utan nýja kerfisins en verður áfram þátttakandi í samstarfi um evrópsk einkaleyfi á vegum Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) ásamt mörgum öðrum ríkjum, innan og utan Evrópusambandsins. Því kerfi verður viðhaldið áfram, samhliða nýja kerfinu.

Frá og með 1. júní verður hægt að fá eitt samræmt evrópskt einkaleyfi á uppfinningum sem gilda mun í öllum þeim 17 Evrópusambandsríkjum sem taka þátt í samstarfinu. Meginbreytingarnar felast í því að ekki mun þurfa að fullgilda nýju einkaleyfin í hverju landi fyrir sig, aðeins þarf að greiða eitt árgjald og ekki þarf að reka mál vegna þeirra í mörgum ríkjum samtímis með hugsanlega ólíkum niðurstöðum. Allt að 25 ríki Evrópusambandsins munu taka þátt kerfinu í nánustu framtíð.

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, segir að eitt samræmt evrópskt einkaleyfi marki mikil tímamót í evrópskri hugverkavernd enda verði einkaleyfavernd nú samræmd í öllum ríkjum Evrópusambandsins sem taka þátt í samstarfinu.

„Um er að ræða viðamestu breytingar sem orðið hafa á hugverkavernd í Evrópu í fimmtíu ár og það verður spennandi að fylgjast með hvernig það mun þróast. Ríki Evrópusambandsins hafa lengi stefnt að því að koma á einu, samræmdu evrópsku einkaleyfi og evrópski einkaleyfasamningurinn, sem einmitt er fimmtíu ára í ár, var ákveðin þrautalending í því ferli. Nú er þetta loksins að verða að veruleika og fyrir íslenska aðila sem hyggjast sækja um einkaleyfi á uppfinningum sínum í Evrópu má gera ráð fyrir að ferlið verði nú bæði einfaldara og ódýrara. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif þetta muni hafa á staðfestingar á evrópskum einkaleyfum hér á landi.“

Nánari upplýsingar er að finna á vef EPO.