Fréttir

Hlýtur Guðmundur Fertram Evrópsku nýsköpunarverðlaunin á Möltu á morgun?

Eiríkur Sigurðsson08. júlí 2024Alþjóðlegt samstarfEinkaleyfiNýsköpunViðburðir
HS Fertram Sigurjonsson 45

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin (European Inventor Award) verða veitt við við hátíðlega athöfn í Valetta á Möltu á morgun, þriðjudaginn 9 júli, kl. 10:00 að íslenskum tíma. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, er einn þriggja tilnefndra í flokki iðnaðar fyrir uppfinningu sína á því hvernig nota megi fiskroð til að græða sár. Hægt verður að fylgjast með athöfninni í beinu streymi.

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru á sviði nýsköpunar í Evrópu ár hvert en verðlaunin eru veitt af Evrópu einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) fyrir framúrskarandi uppfinningar sem hlotið hafa einkaleyfi í Evrópu. Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, stofnendur Oculis, voru tilnefndir til verðlaunanna í flokki rannsókna í fyrra. Þau voru fyrst veitt árið 2006 til að heiðra einstaklinga og teymi sem hafa komið fram með lausnir við mikilvægum samfélagslegum áskorunum. Óháð dómnefnd, sem samanstendur af aðilum sem áður hafa komist í úrslit verðlaunanna, velur þá einstaklinga sem hljóta verðlaunin. Við ákvörðun dómnefndar er litið til áhrifa uppfinninganna á tækniþróun, samfélag, sjálfbærni og hagsæld.