Fréttir
Icewind skráir hönnun til að vernda hugverk fyrirtækisins

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Icewind hefur þróað og sett á markað nýja gerð af vindmyllum sem sérstaklega eru ætlaðar til að framleiða rafmagn við mjög krefjandi veðuraðstæður. Vindmyllurnar nýtast m.a. til að framleiða rafmagn fyrir fjarskiptamöstur á fjallatoppum. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vernd hugverka sinna með því að skrá hönnun, bæði hér á landi og erlendis, sem tryggir því samkeppnisforskot og vernd á markaði.
Samkvæmt Sæþóri Ásgeirssyni, stofnanda og framkvæmdastjóra Icewind, er fyrirtækið í grunninn skólaverkefni sem hefur undið hressilega upp á sig og tekið miklum breytingum í gegnum árin. Í verkfræðideild Háskóla Íslands snerist verkefnið um að smíða vindhraðamæli. Það þróaðist svo út í að verða vindmyllur fyrir sumarbústaði, þaðan yfir í vindmyllur fyrir öfgafullt veðurfar á Norðurslóðum og loks yfir í að vera vindmyllur fyrir fjarskipta- og neyðarkerfi. Stefnt er að því að fyrsta vindmyllan fari á markað á þessu ári, að loknum ítarlegum prófunum.
Með því að skrá hönnun er útlit vindmyllnanna vernduð. Sæþór segir að þó að formlega séð verndi skráð hönnun aðeins útlit vöru, þá ráðist virkni vindmyllnanna af útlitinu og þannig sé virknin vernduð óbeint með hönnunarskráningunni. Þá hafi það að vissu leiti komið stofnendum fyrirtækisins á óvart að útlit vörunnar skipti vissulega máli, óháð virkninni, og því hafi þeir lagt sig fram um að hanna fallegar vindmyllur.
„Í byrjun vorum við kannski ekki nógu meðvitaðir um mikilvægi hönnunarskráninga,“ segir Sæþór. „Þetta var svolítið eitthvað sem var aftast í hausnum á manni og maður vissi að maður þyrfti að ganga frá þessu á einhverjum tímapunkti en ég kannski gerði mér ekki grein fyrir því að ég þyrfti að gera það eins snemma og ég í rauninni þurfti.“ Þetta varð til þess að aðilar úti í heimi nýttu sér hönnunina í eigin þágu, án leyfis. Ástþór segir að þá fyrst hafi þeir uppgötvað hvað það væri mikilvægt að ganga frá þessum hlutum fyrr í ferlinu. „Þannig að seinna meir, þegar við fórum í meiri breytingar á túrbínunni, pössuðum við okkur á því að ganga frá þessu öllu fyrst, áður en við fórum að birta myndir á netinu,“ segir hann.
Almennt má segja að skráning á hönnun og öðrum hugverkaréttindum auki trúverðugleika og dragi að fjárfesta, sem aðeins eru tilbúnir til að fjármagna fyrirtæki sem hafa tryggt sér réttindi á hugverkum sínum. Þá styrkir skráning á hönnun stöðu fyrirtækja á markaði og eykur samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegum vettvangi.
Meira um skráningu hönnunar
Sækja um skráningu á hönnun
