Fréttir
Afgreiðsla og umsóknarkerfi lokuð 27.-29. janúar

Vegna flutnings á netþjónum verður Hugverkastofan lokuð föstudaginn 27. janúar næstkomandi. Umsóknarkerfi og leitarvélar á vef stofnunarinnar verða einnig lokuð til og með sunnudeginum 29. janúar en hægt verður að senda umsóknir og önnur erindi með tölvupósti á hugverk@hugverk.is.
Umsóknarfrestir fyrir endurnýjun réttinda og aðrir frestir sem renna út á föstudaginn verða framlengdir þar til kerfin verða virk að nýju, sem ætti að vera mánudaginn 30. janúar.
