Útgáfa » Fréttir

Ársskýrsla Hugverkastofunnar 2024 er komin út

Ársskýrsla Hugverkastofunnar 2024 er komin út

30. apríl 2025

Ársskýrsla Hugverkastofunnar fyrir árið 2024 er komin út og hefur verið birt á hugverk.is. Í skýrslunni er meðal annars veitt yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar árið 2024, birtar tölur um fjölda umsókna og veittra réttinda, lykiltölur úr rekstri og greinar eftir starfsfólks um hugverkaréttindi.

Í ávarpi Borghildar Erlingsdóttur, forstjóra, kemur m.a. fram að á árinu setti Hugverkastofan sér nýja stefnu þar sem lögð er áhersla á að stofnunin veiti framúrskarandi þjónustu, sé fagleg deigla og frábær vinnustaður. Með skýrri framtíðarsýn og markvissum aðgerðum hafi skilvirkni í málsmeðferð verið aukin og stór skref tekin í stafrænni vegferð, m.a. með innleiðingu á mínum síðum á island.is og innleiðingu á nýju kerfi fyrir rannsóknir á skráningarhæfi vörumerkja.

Í umfjöllun um málsmeðferð stofnunarinnar kemur fram að afgreiðsla landsbundinna vörumerkjaumsókna taki nú aðeins 2-4 vikur og að afgreiðslutími alþjóðlegra umsókna hafi verið styttur um tæpan helming, úr 15 mánuðum í 9 mánuði. Yfir 99% umsókna til Hugverkastofunnar bárust rafrænt á árinu og alls voru 5.573 skjöl send í stafrænt pósthólf.

Í lok árs 2024 voru um 9.600 einkaleyfi í gildi hér á landi, 64.439 skráð vörumerki og 1.460 hönnunarskráningar. Umsóknum um landsbundin einkaleyfi fækkaði um 7% milli ára en staðfestingum evrópskra einkaleyfa fjölgaði hins vegar um 7%. Alþjóðlegum umsóknum um skráningu vörumerkja fækkaði um 12% á árinu en landsbundnum umsóknum fjölgaði um 4%. Loks fækkaði hönnunarumsóknum um 16% á árinu. 

Rekstrartekjur Hugverkastofunnar árið 2024 námu 624,5 milljónum króna. Um 90% rekstrartekna er frá erlendum aðilum. Stærsti útgjaldaliðurinn var launakostnaður sem er um 69% af heildarkostnaði.