Fréttir

Brynhildur Pálmarsdóttir nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar

Eiríkur Sigurðsson16. september 2024Hugverkastofan
Brynhildur Pálmarsdóttir

Brynhildur Pálmarsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Hugverkastofunni.

Brynhildur hefur starfað sem sérfræðingur og verið staðgengill skrifstofustjóra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá árinu 2013 og bar þar ábyrgð á málefnum hugverkaréttinda á sviði iðnaðar. Þá sinnti hún tímabundið starfi yfirlögfræðings hjá Hugverkastofunni 2019-2020 í leyfi frá ráðuneytinu.

Áður hefur Brynhildur starfað sem nefndaritari á nefndasviði Alþingis 2008-2011 og hjá Árnason Faktor sem vörumerkjasérfræðingur 2006-2008 og 2011-2013.

Brynhildur er með Cand. jur gráðu frá Háskóla Íslands og LL.M. gráðu í evrópskum hugverkarétti frá Stokkhólmsháskóla.