Fréttir

Dagný Fjóla Jóhannsdóttir nýr sviðsstjóri hugverka- og stjórnsýslusviðs Hugverkastofunnar

Eiríkur Sigurðsson13. júní 2024Hugverkastofan
Dagný1

Dagný Fjóla Jóhannsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri nýs hugverka- og stjórnsýslusviðs hjá Hugverkastofunni. Hún mun bera ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri sviðsins en þar fer fram efnisleg meðferð umsókna og annarra erinda í tengslum við skráningu á vörumerkjum, einkaleyfum og hönnun.

Dagný hefur starfað sem lögfræðingur hjá Hugverkastofunni frá árinu 2017. Á árunum 2020-2022 var hún í starfsvist hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í Alicante á Spáni. Þar áður starfaði hún hjá Tego hugverkaráðgjöf.

Dagný útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum árið 2017. Hún stundar nú meistaranám í nýsköpun og tæknirétti í Háskólanum við Edinborg samhliða starfi sínu hjá Hugverkastofunni.