Fréttir

Hugverkastofan hástökkvari ársins í Stofnun ársins

Eiríkur Sigurðsson16. febrúar 2024Hugverkastofan
Hopurinn

Hugverkastofan er sú opinbera stofnun sem bætti starfsumhverfi starfsmanna sinna mest árið 2023 samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar Stofnun ársins sem er samstarfsverkefni Sameykis, kjara- og mannauðssýslu ríkisins og mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar.

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar veitti viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica í gær.

„Við erum mjög stolt og þakklát fyrir að hafa verið útnefnd Hástökkvari ársins í könnuninni Stofnun ársins fyrir árið 2023. Þetta er vitnisburður um góðan starfsanda og samheldni sem einkennir Hugverkastofuna og þann góða árangur sem við höfum náð á síðustu mánuðum. Velferð starfsfólks skiptir okkur mjög miklu máli og með því að leggja áherslu á að skapa góðan vinnustað stuðlum við að aukinni framleiðni og árangri fyrir stofnunina í heild sinni. Í þessu samhengi réðumst við m.a. í innri stefnumótun á nýliðnu ári sem hefur þegar skilað framförum í innra starfi og aukinni starfsánægju. Við fluttum líka í nýtt og glæsilegt húsnæði síðastliðið sumar þar sem allt starfsfólk vinnur saman í einu, opnu rými. Þessi viðurkenning staðfestir að við erum á réttri leið og er hvati fyrir okkur til að halda ótrauð áfram við að tryggja að Hugverkastofan sé frábær staður til að vinna á,“

Borghildur Erlingsdóttir

forstjóri Hugverkastofunnar

Könnunin Stofnun ársins veitir innsýn í starfsumhverfi og starfskjör starfsfólks á opinbera vinnumarkaðnum. Tilgangur með könnuninni er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi og veitir aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti sem tengjast þeirra störfum þ.e. stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægju og stolt og jafnrétti

Stofnanir ársins 2023 hjá ríkinu eru: Fjölbrautarskóli Suðurnesja, Þjóðskrá Íslands og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Hugverkastofan er í 10. sæti listans fyrir stofnanir með 5-39 starfsmenn.

Hástökkvari ársins 2023