Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Hugverkastofan í 8. sæti í Stofnun ársins 2025

Sameyki Stofnun Arsins 2025 1

16. febrúar 2026Hugverkastofan

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið á Stofnun ársins við hátíðlega athöfn 12. febrúar síðastliðinn. Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir og starfsstaðir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála að mati starfsfólks á árinu 2025.

Hugverkastofan varð í 8. sæti í flokki ríkisstofnana með 5-39 starfsmenn og hækkar um tvö sæti frá fyrra ári, en þá var stofnunin hástökkvari ársins. Stofnun ársins í þessum flokki var Menntaskólinn á Tröllaskaga.

Samkvæmt upplýsingum á vef Sameykis var könnunin að baki Stofnunar ársins gerð í október til desember 2025. Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana. Svarhlutfall var tæplega 52%. Þátttaka í könnuninni eftir kyni var 69% konur og 31% karlar.

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og veita þeim vinnustöðum viðurkenningar sem náð hafa framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að frekari umbótum í stjórnun og starfsumhverfi vinnustaðanna. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og vinnustaða, en hún nær til um 35.000 manns sem starfa á opinberum vinnumarkaði.

 

(Mynd og texti af vef Sameykis)