Fréttir
Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra heimsækir Hugverkastofuna

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, heimsótti Hugverkastofuna í dag ásamt starfsfólki ráðuneytisins.
Borghildur Erlingsdóttir forstjóri tók á móti hópnum, sýndi honum skrifstofuna og kynnti fyrir starfsmönnum. Að því loknu kynnti hún hugverkavernd og starfsemi Hugverkastofunnar fyrir ráðherra og fylgdarliði. Meðal þess sem farið var yfir var tölfræði skráðra hugverkaréttinda á Íslandi, mikilvægi skráningar fyrir verðmætasköpun og nýsköpun, fræðslumál, alþjóðlegt samstarf, rekstur og fleira.
Frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu sóttu fundinn, auk ráðherra: Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri; Halla Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra; Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri og Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála.
Frá Hugverkastofunni sátu fundinn, auk forstjóra: Brynhildur Pálmarsdóttir, yfirlögfræðingur; Dagný Fjóla Jóhannsdóttir sviðsstjóri hugverka- og stjórnsýslusviðs, Pétur Vilhjálmsson stafrænn leiðtogi og Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri.
